Spekileki

Spekin lekur af manninum sem vill með algildingu segja okkur hvað verður eða verður ekki. Staðreyndin er sú að þeir sem rýna í tölfræði í þessu Covid-19 ástandi verður ansi lítið ágengt. Það eru komnir 9 mánuðir af alskoanar bönnum og aðgerðum. Fólk er hætt að hlusta eins og gerist alltaf þegar algildi eru sett fram.

Ef ætlunin er að loka á öll smit þá er lekinn alveg augljós. Hann kemur í gegnum landamærin. Annars mun hin 95-98% sem ekki hafa smitast læra að lifa með þessu.

Við vitum núna:

Ekki þarf að nota hanska lengur

Grímunotkun kemur ekki í veg fyrir smit

Ef hitt er einhvern utan að komandi þá ekki neyta drykkjar eða matar á sama tíma

Hatlu þig heima og hlýttu hræðsluáróðri og þá líður öllum vel

Njóttu lífsins eins og það er (eða ekki er)

Hlýðið annars ...


mbl.is Gæti orðið „sprenging“ í fjölda smita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig á þá að borga rekstur borgarlínu?

Ef ekki má prófa sig áfram með að auka tíðni ferða strætó, hvernig á þá að vera hægt að réttlæta borgarlínu? Rekstur borgarlínu er margfalt dýrari en strætó svo varla er það svarið ef Reykjavíkurborg vill ekki leggja meiri pening í strætó eins og hann er.

Borgarlína er auðvitað algert fíaskó enda höfuðborgasvæðið ekki nægilega fjölmennt til að réttlæta annað en strætó. Svipað kerfi virkar nógu vel ef tíðnin er aukin og miðstöðin færð í Mjódd.

Burt með borgarlínubáknið!


mbl.is Ekki búið að auka tíðni Strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. nóvember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband