31.3.2022 | 23:16
Olían er málið
Nú þegar að kreppir og allt hækkar í verði vegna sjálfskipulagðra vandræða vesturlanda (fyrst covid og svo efnahagsþvinganir gegn Rússlandi) þá auðvitað er leitað í olíuna. Orkugjafar frá vindmyllum og sólarsellum er svo óstöðug að leita verður tll olíunar til að lækka verð.
Heimskan er óstöðvandi því eftir 20 ár eru búið að skipta um 10% í orkuskiptum með því að eyðileggja stór landsvæði og firði.
Þessi gagnslausa grænslepjustefna er ekki að ganga upp og algerlega út í hött að halda að vinorkuframleiðsla á Íslandi skili einhverju fyrir landið. Vissulega eðlilegt að gera tilraunir með þetta en gagnsleysið er augljóst. Hvað þá sjónmengunin að horfa á þessar vindmyllur.
Þótt demókratar séu með þessu að afla sér atkvæði fyrir kosningar í nóvember þá spái ég að Biden verði farinn áður en að kosningum kemur. Demókrötum verður refsað í þeim kosningum og næstu forsetakosningum.
![]() |
Biden skrúfar frá olíukrananum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)