Veigar Páll lærðu af þessu

Það er rangt hugarfar hjá leikmanninum að hugsa þannig að hefði leikurinn tapast þá hefði atburðurinn setið í honum en af því þeir unnu þá eigi hann að gleyma.

Nær væri að læra af atburðinum og koma þannig í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig á einhvern hátt. Alveg sama hvað var gert við hann þá gerði Veigar Páll mistök sem hefðu getað verið dýrkeypt. Þessi mistök geta hæglega endurtekið sig nema hann læri af atburðinum.

Íþróttamenn eiga að læra af svona atburðum alveg eins og þeir þurfa að læra tækni.


mbl.is Veigar Páll: Ég skammast mín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veigar Páll situr flötum beinum og er að laga skóinn eftir ljóta tæklingu

FHingurinn tekur á sig stóran krók beygir sig niður og öskrar í eyrað á honum

ég held að hinir FHingarnir hafi skammast sín fyrir þessa framkomu

að það hafi haft slæm áhrif á hugarfar þeirra í leiknum

Grímur (IP-tala skráð) 5.10.2014 kl. 21:34

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það skiptir engu máli hvað FH-ingur gerði áður en Veigar Páll brást við. Hann ber ábyrgð á sinni hegðun og á að læra af henni en ekki ýta henni í burtu eða kenna öðrum um.

Rúnar Már Bragason, 5.10.2014 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband