Brot í verslunum?

Hér er einfaldlega verið að fara með rangt mál. Samkvæmt reglu ber að nota grímu ef þess er ekki kostur að vera 2 metra frá. Þegar lítið er að gera í stærstu matvöruverslunum þá ertu aldrei nálægt neinum og langt frá 2 metrum. Hvernig á þá að vera hægt að skikka einstakling til að bera grímu?

Fólk ætti að snúa sér að öðru enda er þessi vitleysa komin langt út fyrir velsæmismörk. Ef grímur eru alger skylda þá ætti sóttkvíarkvaðir að vera þannig að einstaklingar sem ganga framhjá sýktum einstaklingi, án þess að tala við hann, að fara í sóttkví. Þannig er það ekki í dag og hvað á gríman þá að gera ef hægt er að halda fjarlægð?

Engar rannsóknir hafa sýnt fram á að fólk smitist í matvöruverslunum. Langflestir smitast af einhverjum sem eru í samskiptum við. Til hvers þá að eltast við það ef einhver vill ekki hafa grímu í stórri matvöruverslun?

Við gátum farið út í búð í vor án gríma. Af hverju ekki núna?

 

Hvar er skynsemin?


mbl.is Tilkynnt um 11 brot á sóttvarnalögum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það sem vantar núna eru skipulagðar aðgerðir. Hópur fólks fer í verslun, án grímu. Tilkynnt er til sóttólfanna fyrirfram hvað stendur til. Blaðaljósmyndarar fengnir á staðinn eða bara símar notaðir. Fólkið verður vitanlega sektað, og neitar að borga. Hópur lögmanna tekur að sér vörnina pro bono. Þá loks neyðist saksóknari til að reyna að sanna að reglurnar standist kröfu um meðalhóf og að þær séu nauðsynlegar. Og það er auðvitað ekki hægt.

Lýsi eftir sjálfboðaliðum og lögmönnum.

Þorsteinn Siglaugsson, 31.10.2020 kl. 18:26

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nei því miður er ekki verið að fara með rangt mál. Samkvæmt nýju reglugerðinni sem tók gildi á miðnætti skal nota andlitsgrímur í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu, alveg óháð því hvort hægt sé að viðhafa 2 metra fjarlægðarmörk. Grímuskylda sem er háð því að ekki sé hægt að viðhafa 2 metra fjarlægðarmörk gildir eftir sem áður í annarri starfsemi svo sem í heilbrigðisþjónustu, leigubifreiðum og hópbifreiðum.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.10.2020 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband