15.6.2021 | 10:30
Að gera það sama og vonast eftir öðrum árangri
Þessi fyrirsögn á best við um aðferðafræði Hafrannsóknarstofnunar á stofnstærð fiska á Íslandsmiðum. Í rúm 50 ár hefur verið notast við sömu grunnaðferðina við að meta stofnstærð. Smávægislegar breytingar hafa verið gerðar og stærstu 2001 eða fyrir 20 árum síðan.
Að halda því fram að önnur niðurstaða fáist með að notast við sömu aðferðafræði, án þess að endurskoða og betrum bæta aðferðina, gengur hreinlega ekki upp. Það er ekki í anda vísindalegrar nálgunar.
Það eru flottir vísindamenn sem vinna við stofnunina og skrifar góðar greinar. Því miður rata þær ekkert nálægt aðferðafræðinni og því verða engar breytingar.
Næstu 50 árin veiðum við þetta 200 - 300 þús. tonn á ári, vegna óbreyttrar aðferðafræði.
![]() |
Töluverð frávik í mati Hafró þorskstofninn minni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég veit svei mér ekki hvað hægt að kalla þessa svokölluðu "ráðgjöf"? Eitt er víst að ekki er HÆGT að kenna þetta við vísindi og ég er alveg kjaftbit á því hvernig landsmenn ætla að láta þetta kjaftæði ganga yfir sig svo áratugum skiptir án þess að segja eitt einasta orð.......
Jóhann Elíasson, 15.6.2021 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.