Trúir Dagur B. Eggertsson því sem hann segir?

Í þessari upptalningu hans Dags þá er ekkert honum eða hans fólki að kenna. Það eru alltaf utan að komandi þættir sem hafa áhrif. Ég spyr: trúirðu því virkilega?

Þeir sem sukka og eyða um efni fram eru sjaldnast tilbúnir að líta í eigin barm og segja ég er að gera rangt. Í staðinn kenna þeir öðru um. Dagur gerir nákvæmlega það sama, það er alltaf öðrum um að kena.

Hann vill ekki hætta við borgarlínu því í hans huga á ríkið að borga brúsann. Skítt með hvernig rekum apparatið, sendum bara reikninginn á ríkið.

Með því að kenna fötluðum um óráðsíu sína þá er varla hægt að leggjast lægra. Það má alveg deila um hvort fjármagnið sé nóg en að það sé úrslitavaldur í lélegri fjármálastjórn en algerlega fyrir neðan beltisstað.

Ég vorkenni reykvískum kjósendum fyrir að hafa látið plata sig enn eina ferðina.


mbl.is Aðhald hjá borginni hefur ekki áhrif á borgarlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dagur B leggst alltaf lægra og lægra.

Allaf er þetta einhverjum öðrum að kenna. Líttu í spegil ! Þú berð ábyrgð á þessu öllu þú getur ekki bara leikið

Borgarstjóra þegar þér sýnist !

ATH að Reykvískir kjósendur hafa í tvígang hafnað hans óstjórn á Borgini, en með sömu klækjum og hann beitti í bókhaldi Reykjavíkur hefur hans sölsað "meirihluta" í bæði skiptin.

Það vekur athygli margra, að nú eftir að Framsókn reisti við fallna meirihlutan, þá var ekki lengur hægt að fegra bókhaldið, svo ALLT Í EINU er Borgin með 15 milljarða halla !

Er það ekki það sem minnihlutinn hefur haldi fram í mörg ár ?

Svei þér og þín hyski Herra Borgarstjóri.

Birgir Örn Guðjónsson (IP-tala skráð) 4.11.2022 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband