Fréttastofa Rúv í hitahelvíti

Í kvöld var ég gestur þar sem settar voru á fréttir Rúv og fyrsta frétt var hitinn í heiminum í dag sem á víst að vera á leið til heljar skv. Rúv. Fréttin stóð í um 7 mínútur. Veit ekki hvort það var 6 mínútur og 66 sekúndur en það hefði verið viðeigandi með undirspili frá Iron Maiden - Number of the beast.

Endist nú ekki fréttina að hlusta á þvæluna en inntakið var svipað og í viðtengdri frétt nema það þurfti hressilega að bæta í dramað. Hjörleifur Guttormsson væri hæstánægður með þessa frétt enda skrifaði hann á svipuðum nótum í Morgunblaðinu í dag.

Skrýtið samt að þetta fólk virðist ekki vita að fleiri deyja úr kulda en hita. Að met verður sett í ár brennslu kola í heiminum. Fyrir hverja þessi boðskapur um hlýnun á að ná til er vandfundið því meirihluti jarðarbúa hlustar ekkert á þetta. Af hverju heyrist ekkert í þessu fólki þegar kuldaköstin standa yfir? 

Hver er þá tilgangurinn með þessu? Að draga Evrópu niður í enn meira samdrátt? Að allir í heiminum hafi það jafnskítt og sérvaldir lifi lúxuslífi?

Það er ekkert mark takandi á þessum spádómum.

E.S. Vitið til að Bandaríkin og Evrópa eru að fara inn í samdráttartímabil. Til að komast út úr því verður að nota jarðeldsneyti. Þá skiptir hlýnunin engu máli því redda þarf lúxulífi fárra.


mbl.is Júlí heitasti mánuðurinn og hlýrri mánuðir framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Besta kenningin er sú, að þeir sem séu að básúna þessum ótta-áróðri séu þotu-liðið, sem óttast það mest að fáætlækari deildir jarðarbúa eyði öllu þotu-eldsneytinu þeirra til þess að komast í og úr vinnu og búa til kartöflur, og borði svo allar fínu steikurnar frá þeim.

Fyrir þetta auðuga fólk er semsagt mikils vert að allir fari bara að borða mold og hætti alfarið að ferðast, deyji helst bara.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.7.2023 kl. 22:02

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Þessi frétt á visi.is https://www.visir.is/g/20232444551d/juli-gaeti-ordid-heitasti-manudurinn-i-120-thusund-ar slær næstum út Rúv. Ekki nóg með að mælanlegar hitatölur séu rétt um 200 ára þá allt í einu er verið að tala um mesta hita í í 100 þúsund ár.

Þetta er orðin keppni í hver getur sagt mestu vitleysuna.

Rúnar Már Bragason, 27.7.2023 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband