Svart hvítar hetjur eyða heiminum

Dúkkulísurnar sungu eftirminnanlega um svart hvítu hetjun á 9. áratugnum með vísan í sjónvarpsútsendingar þess tíma.

Staðan í pólitíkin í dag í heiminum er að allt sé svart hvítt og helst að hlutunum sé snúið á hvolf. Þannig ætlar Meta að loka á Russina Times (of fleiri rússneska miðla) vegna þess að þeir séu dreifa áróðri um stríðið í Úkraínu. Eins og meginstraumsfjölmiðlar séu ekki nógu duglegir við það þá má ekki önnur skoðun koma fram.

Þannig heimur er svart hvítur og líkja má þessum vinnubrögðum við það sem nasistar notuðu á sínum tíma. Þeir náðu góðum árangri tímabundið enda svona vinnubrögð ekki til þess fallin að ná árangri til lengri tíma. Nú skulum við ekki rugla saman að einhverjir séu nasistar þótt þeir notu sömu aðferðir en einmitt í svart hvítri umræðu þá verða ansi margir viðkæmir og kalla ýmislegt nöfnum sem koma málinu minnst við.

Annar vængur af svart hvítri umræðu er þöggun en hún er óspart notuð af meginstraumsfjölmiðlum. Tókstu eftir fréttinni um að Íranir sem hökkuðu Trump framboðið sendu upplýsingarnar á Biden/Harris framboðið. Svar þeirra væri að Biden/Harris framboðið væri í raun fórnarlambið. Hvernig er mögulegt að snúa hlutunum svona á hvolf.

Þriðji vængurinn er nauðung sem er mikið notuð í kringum kynjaumræðuna. Því miður láta samkynhneigðir nota sig með tali um fjölbreytileika og notkun á fána sem mér finnst vera niðrandi fyrir þann hóp. Eitt er að berjast fyrir ákveðnum réttindum en þetta er hætt að snúast um það þegar neyða á fólki til að banna tala um kyn.

Loftlagsmálin eru alveg sér umræða um vitleysu sem fær að dafna og kaffæra fólk.

Heimur sem er svart hvítur er einsleitur og allt tal um fjölmenningu, fjölbreytileika og opinn landamæri ýtir undir einsleitnina. Lyf hafa aldrei í mannkynssögunni verið jafn mikið notuð. Vissulega geta þau hjálpað á ögurstundu en satt að segja mætti fækka þessu um 80% og líklega lifum við betur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Stórkostlegur pistill og algjörlega sannur, hvert einasta orð.......

Jóhann Elíasson, 19.9.2024 kl. 15:16

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Takk Jóhann

Rúnar Már Bragason, 19.9.2024 kl. 18:53

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta fjárans hyski lætur nazista (og fasista almennt) líta nokkuð vel út.

(Þú þekkir fasista venjulega á því að þeir vilja "félagslega ábyrgð" og vita hvað sá frasi þýðir, á meðan hinn almenni kommi notar þann frasa bara sem slagorð til þess að reyna að eyða einkafyrirtækjum)

"Loftslagsmál" eiga heima í sömu kategoríu og flatjarðarhyggjan.

Til að gleðja þíg aðeins, á ku vera til samkunda samkynhneigðra sem er ekki á sömu línu og 78.  Sem er skiljanlegt viðhorf.  Man ekki hvað sá hópur heitir, en mig minnir það sé 22.  Nenni ekki að gúgla það.

Til frekari gleðiauka, þá er þetta sem þú nefnir allt að verða til þss að MSM er að missa áhorfendur, og það ansi hratt.

Bara fólk yfir 70 horfir á CNN, til dæmis.  Ekki primo target auglýsenda.

Ég hef frekar góða tilfinningu fyrir komandi kynslóð.  Það lið er ekki að horfa á RÚV eða CNN.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.9.2024 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband