Flissandi konur missa trúverðugleika

Á undra skömmum tíma þá missa þrjár flissandi konur trúverðugleika á stjórn sem þær mynduðu fyrir jól. Jólagjöfin hefur enst illa og orðin frekar súr.

Fyrsta voru auðvitað svikin um ESB daðrið sem enginn bað um og var þagað um fyrir kosningar. Ótrúlega lélegt innsæi í heimspólitíkina þetta ESB daður enda á leiðinni í ruslið þar sem það á heima.

Hin svikin voru að segja eitt fyrir kosningar en taka 180° snúning eftir kosningar. Enginn flokkur hefur lifað slíkt af þótt VG náði að hanga á roðinu í rúman áratug. Líklegast vegna þess að svikarinn hélt sig til hlés eftir næstu kosningar.

Flokki fólksins fannst það ekki nóg og þurfti að daðra við misnotkun á valdi sínu. Hef aldrei haft trú á Ingu Sæland og það mat mitt reyndist rétt. Hún er ekki hæfur stjórnandi. Ekkert frekar en hinar flissandi konur því önnur þegir og hin blaðrar út í eitt án þess að leita eftir hvort vilji sé til þess hún talar um.

Ég sagði fyrir kosningar að tækifærissinnar væru versta sort stjórnenda og það er svo bersýnilega að koma í ljós.


mbl.is Mikil misbeiting á ráðherravaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Snöggur niðurgangur Ingi er mjög skoplegur, vægast sagt.

Það að Katrín fær ekki að tjá sig um hernaðaraðgerðir í Eystrasalti er skoplegt, og segir okkur margt.

Samræaðsgáttin hefur bæúið til mikið af góðu efni.

Það er mikil kómík í þessu öllu.

Mónómanískt raus Þorgerðar um evrópubandalagið er heldur þreytt samt.  Mætti aðeins draga úr.

Ásgrímur Hartmannsson, 28.1.2025 kl. 17:05

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Verst að brandarinn er á kostnað skattgreiðenda og já þær eru mjög kómískar stöllurnar.

Rúnar Már Bragason, 29.1.2025 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband