Leikflétta Trumps með Grænland

Út frá leikjafræði eru þetta snilldartilþrif hjá Trump en ömurleg staða fyrir Grænlendinga. Trump er að sýna Evrópu hversu veikir þeir eru og geti ekki sinnt almennilega vörnum sem Bandaríkjamenn sækjast eftir. Í framhaldinu er auðvelt að semja um stríðið í Úkraínu því ekki getur Evrópa verið í stríði og haldið uppi vörnum á öðrum stað. Til þess leggja löndin ekki nóg til hernarðar.

Það er alveg sama hvað Evrópa æmtir og skræmtir í þessu máli, þeir munu tapa. Eftir áratuga sukk, vonlausa sameiningu sem var toppuð með gjaldmiðli, loftlagsvitleysu, kynjavitleysu o.s.frv. hefur Evrópa enga burði til að standa í stríði, sjá um varnir eða forðast það jafnvel að fara í þrot.

Raunveruleikinn er mættur og það þarf að taka út timburmennina.


mbl.is Sýður á grænlenska þingmeirihlutanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já þetta er margþætt. Með þessu sýnir hann Evrópu fram á að þeirra wók-draumsýnir eru firna fáránlegar.

Einnig er þetta rétt hernaðarfræðilega því Kína ásælist Grænland. Ef Bandaríkin ná þarna yfirráðum er aðeins búið að breyta valdajafnvæginu, því það sem margir á Vesturlöndum vita ekki að Kína er með útþenslustefnu, en þeir fara vægar í sakirnar. Þó er margt sem þeir gera í Afríku og víðar alveg að sýna þetta svart á hvítu að Kína er með útþenslustefnu.

Trump er einn alfyrsti stjórnmálamaðurinn á Vesturlöndum sem veit og skilur að hnignun hefur ríkt hjá okkur, en uppgangur í Kína, Asíu, Afríku og Suður Ameríku.

Í samanburði við Trump eru allir hinir eins og fávitar á hæli. Satt að segja.

En skynsamlegast er að gera einhverskonar samninga um sjálfstæði við Grænlendinga sjálfa, hvernig sem hann getur litið út. Trump vill ekki bara námuvinnslu, heldur nota hafsvæðið, fylgjast með skipum, kafbátum, flugvélum, og svo nota þetta sem umskipunarhöfn. 

Það snilldarlegasta við þetta er að hann er að reyna að geirnegla wókvitleysuna niður, bæði heima og erlendis. Með því að ráðast á wók-hryllinginn í Evrópu er hann að takast á við þetta heima líka.

Já, djúpur pistill. 

Ingólfur Sigurðsson, 29.1.2025 kl. 12:29

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Takk Ingólfur viðbrögðin frá wók liðinu er líkt og búast mátti við. Þetta er bara tímaspursmál.

Rúnar Már Bragason, 29.1.2025 kl. 14:56

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Gott.

Egilsstaðir, 29.01.2025   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 29.1.2025 kl. 17:07

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bandaríkin hafa enga þörf fyrir að "yfirtaka" Grænland með hætti sem myndi skapa mikinn óstöðugleika í þeirra eigin nágrenni, því Grænland er nú þegar innan áhrifasvæðis Bandaríkjanna rétt eins og Ísland.

Að standa í landvinningum með valdi er gamaldags aðferð stórvelda til að standa vörð um eða styrkja stöðu sína, hið alþjóðlega valdatafl nútímans snýst miklu frekar um áhrifasvæði (e. spheres of influence).

Guðmundur Ásgeirsson, 29.1.2025 kl. 18:26

5 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þeir eru með þetta ekki síður Ingólfur og Guðmundur. 

Þetta verður vonandi eitthvað líkt og á Íslandi.  

Jónas Gunnlaugsson, 29.1.2025 kl. 20:54

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Albert Jónsson sérfræðingur um öryggis- og varnarmál og fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi útskýrir þetta vel í grein á Vísi: Ís­land og Græn­land á áhrifa­svæði Banda­ríkjanna - Innherji

Guðmundur Ásgeirsson, 29.1.2025 kl. 21:09

7 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Albert er fróður um málið en mér finnst útskýringar hans um hvarf íssins í norðurhöfum ekki sannfærandi. Ísinn virðist ekki vera fara neitt. Í annan stað gefur hann sér fullmikið að NATÓ haldist óbreytt en Trump hefur amast mikið í NATÓ og óvisst að hlutir þar haldist óbreyttir.

Rúnar Már Bragason, 29.1.2025 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og tíu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband