Hvar eru tillögurnar að sparnaði

Þetta var nú alveg vitað að væri kynnt með húllum hæ og svaka árangur en við fáum engin dæmi, ekki einu sinni eitt. Voða mikill árangur og ótrúlegt eitthvað svo mikið um ekki neitt.

Ef fjárlagahallinn í ár er 26 miljarðar þá ná þessar tillögur varla að taka á fjárlagagatinu. Hvar er útskýring á ávinningnum af tillögunum.

Þetta minnir of mikið á svakalegu sparnaðartillögur Reykjavíkurborgar sem áttu að skila undraverðum niðurstöðum. Sem samt létu bíða eftir sér.

Grunnt á því góða.

 

E.S. Tillögurnar mættu en sameining stofnanna hefur verið til umræðu í mörg ár. Eftir stendur hvar eru raunverulegar sparnaðartillögur?

Það er alveg vitað að sameining stofnanna skilar sjaldnast tilætluðum árangri og frekar ofreiknað en hitt. Ef notuð er fyrri tala um fjárlagahalla þá nær þetta varla helmingnum af því. Á mannamáli og í raunveruleikanum þá verður ríkissjóður áfram rekinn með tapi og skuldaaukningu.

Hinn pólitíski raunveruleiki þessara tillagna er einungis að fleyta rjómann. Það vantar að taka skrefið að alvöru tillögum sem skila árangri til framtíðar. Af hverju? Jú það gleymdist nefnilega að það er búið að lofa svo miklum útgjöldum að sparnaðurinn hverfur í þau útgjöld.


mbl.is Gera ráð fyrir að spara ríflega 70 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

"Einföldun á regluverki"

en samt á að sækjast eftir að fá að innleiða allar ESB reglur

sem virðast munu heimta fjárfestingu í vígatólum ef fer fram sem horfir

Grímur Kjartansson, 4.3.2025 kl. 19:10

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þeir slepptu viljandi að taka til greina þær tillögur sem vitað var að virkuðu.

Sögðu að þær væru svo pólitískar.

Ekkert þor...

Ásgrímur Hartmannsson, 4.3.2025 kl. 21:07

3 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það er líka hægt að nefna blekkinguna að setja fram 64 tillögur en nefna ekkert hvað komu fram margar tillögur. Tala nú ekki um ef tillaga eins og að sameina stofnanir sr margatalin.

Hvað eigi að fá út úr sparnaðinum kemur ekki fram enda ekki minnst orði á að greiða niður skuldir.

Rúnar Már Bragason, 4.3.2025 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband