Allar rannsóknir eru pólitískar

Veit ekki hvers konar kúlu þessi blessaði maður lifir í að staðaldri. Ef hann áttar sig ekki á því að allar rannsóknir sem eru ríkisstyrktar eru pólitískar og einnig þegar einkaaðili styrkir. 

Það sem hefur gerst á þessari öld er að styrktarveitingar hafa farið eftir tískubylgjum. Fyrst var troðið orði um loftlagsmál og styrkur flaug í gegn. Síðan tók við DEI og  styrkir flugu í gegn. Trump vildi loka á þetta og fá rannsóknir sem fylgdu ekki tískuorðum. Við það virðast ansi margir háskólamenn missa flugið og vita ekkert hvað þeir eiga að gera. 

Líklegast þarf bara að sækja um styrki og sleppa tískuorðum. Það er nú allur munurinn.


mbl.is „Það er verið að gera rannsóknir pólitískar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband