30.5.2025 | 22:15
Kvótakerfið er ekki sjálfbært og getur aldrei verið það
Marxíska notkunin á hugtakinu sjálfbærni í pólitík hefur í raun ekkert með sjálfbærni að gera. Hugtakið er fengið úr líffræði þar sem tekið er ákveðið vistsvæði og sýnt fram á sjálfbærni þess. Þannig getur maðurinn lifað á vistsvæði og með hóflegri nálgun viðhaldið sjálfbærni.
Kvóti á veiðar í sjó snúast ekki um vistsvæði enda er vistsvæði þorsksins eða betra taka ufsa langt frá því að vera innan 200 mílna. Hins vegar má Hafró aðeins vinna innan 200 mílna og byggir veiðiráðgjöfina á því. Sem segir okkur það að sjálfbærni á ekki við um fiskinn í sjónum því hann er ekki innan ákveðins vistsvæðis.
Allt tal um sjálfbærni veiðistofnsins er bara marxísk nálgun á stjórnun. Halda að þeir séu guðir sem viti allt um allt og geti þannig sagt okkur hvað mikið magn af fiski er í sjónum. Hins vegar hefur Hafró aðeins tvö skip til umráða sem sigla um og kanna miðin. Á yfir 700 þús ferkílómtrum segir það sig sjálft að það er aðeins verið að skrapa yfirborðið. Ekkert ósvipað og gervigreindaforritin eru að gera, yfirborðskennt kjaftæði sem skortir alla dýpt.
Þetta að festa einhvern dagafjöld er frekar skrýtið en að veitt sé 30 þús tonn hefur bara engin áhrif. Aðferð Hafró er svipuð og excel útreikningum þar sem allt á að vera línulegt upp á við en raunveruleikinn er oft í öfuga átt. Tölfræði vinnur svo illa með sveiflur og því þarf að lesa vel í öll tölfræðigögn reglulega. Tölfræðigögn fortíðar segja ekki endilega um framtíðina en geta gefið vísbendingar. Aflamarksreglan brýtur þetta lögmál tölfræðinnar og er því í raun ónothæft fyrirbæri.
Þessi deila er gott dæmi um hvaða ógöngur marxískar reglugerðir eru komnar út í fyrir þjóðina.
Smá viðbót til að hugsa um: Hver talar um samfélagslega ábyrgð í dag?
![]() |
Ég er bara að ganga skrefinu lengra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning