12.6.2025 | 12:20
Trúarbrögð hitamæla
Í allri umræðu um loftlagsvá þá er einhver óskýranleg trú í kringum hitamæla. Að þeir geti sagt okkur svo mikið hvað sé að gerast. Ekki er annað hægt en að kalla þetta trúarbrögð.
Sífellt fleiri átta sig á því að hitamælir fyrir einni öld segir ekki það sama og hitamælir (hitamælar) á sama stað. Hvers vegna? Jú vegna breytinga sem eiga sér stað í umhverfinu þe. byggingar, gróður og fleira. Hið rétta er líka að saga hitamæla í eina til tvær aldir segir ekkert til um hvað gerðist fyrir 10 til 20 öldum. Hvað þá að hafa eitthvað spágildi til framtíðar.
Þess vegna er ekki hægt að tala um loftlagsvá því við einfaldlega vitum ekki nóg til að segja til um hvað er að gerast. Ljóst er þó að hitamælar eru lélegir mælikvarðar á loftlagsmál. Nú t.d. sendi visir.is grein um maí hitann en sagði ekkert um júníkuldann. Sagði ekki heldur að það væri vitað um svipað ástand áður þó hitamælar hafi sett met. Tölfræði gefur okkur vísbendingar en er enginn sannleikur.
Eins og venjulega þá eyðileggur marxísk pólitík alla skynsemi í kringum umræðuna. Líkt og með skattana þá er bara tekin ein breyta og haldið að hafi engin áhrif á neitt annað. Leiðrétting veiðileyfagjalda er brennd þessu marki enda útreikingar þar alltaf á pari við fallista í stærðfræði. Fyrir utan hina ósanngjörnu leið sem farin er þe. ekki gefið út frá magni.
Hin eyðileggjandi mynd marxismans er í allri pólitík á Íslandi og er enginn flokkur undanskilinn henni. Hrunið í kringum stjórnkerfi byggt á marxisma kemur alltaf út frá því að halda að ein breyta hafi ekki áhrif á aðrar breytur. Enn verra er þegar haldið er að nóg af peningum sé til að framkvæma allar hugdettur.
Trúarbrögð hitamæla er marxismi af verstu gerð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning