Kominn tími á að slökkva á sjálfstýringu alþingismanna

Kæran er athyglisverð þar sem lögin hafa ekki enn verið samþykkt en inntakið er gott. Það verður að útkljá hvenær er verið að vinna eftir stjórnarskrá landsins. 

Núverandi ríkisstjórn, sem kallar sig verkstjórn, heldur að það þurfi ekkert að vinna með öðrum og hvað þá að hlusta á þjóðina. Þau vita allt betur og okkur ber bara að hlýða. 

Andsvar Þórdísar sýnir hverjir eru í raun hræddir. Allt tal ESB sinna um þjóðaratkvæðagreiðslu hefur verið mantran "við hvað eru þið hrædd". Raunveruleikinn er sá að þetta fólk er hrætt og telur sig vinna vel fyrir þjóð með að valta fyrir hana. Hlusta ekki á mótraddir er rök um hvort ekki sé betra að vinna málið betur. 

Listinn er langur og lengist á hverjum degi. Sömu vinnubrögð eru höfð uppi á borðum. Þess vegna er kæran athyglisverð en mér segir svo hugur að vók ríkissaksóknari vísi henni á bug. Kerfið ver sig út í hið óendanlega. 


mbl.is Samtökin Þjóðfrelsi kæra utanríkisráðherra fyrir landráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Nú reynir fyrir alvöru á heillyndi íslenska dómstóla og verður ákærunni örugglega áfrýjað alla leið, þó öllum brögðum verði vafalaust beitt til að stöðva ferlið.

Ég er því miður svartsýnn, litið til sorglegrar ferilskrár yfirvalda og dómstóla á Íslandi.

Jónatan Karlsson, 14.6.2025 kl. 06:50

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sjö?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband