Hlýðið Víði - aka hlýðið ríkisstjórnni - hún inniheldur Víði

Eitt sinn datt einhverjum í hug að búa til boli með áletruninni Hlýðið Víði þegar Covid var frekar stutt á veg komið. Nú vill ríkisstjórnin, með Víði innanborðs, að þeim sé hlýtt og öllu mokað í gegn burtséð frá því hvort það sé boðlegt að samþykkja. 

Þessi þráhyggja með bókun 35 er frekar skrýtin. Björn Bjarnason vill meina að hún sé þegar til staðar en samt vill enginn annar kannast við það. Landráðsákæra á hendur Þorgerði vegna frumvarpsins var úthýst af Spanó því ekkert í frumvarpinu benti til landráðs. Líklega hefur hann ekki lesið bréfið sem var sent. Samt með hans orðum þá virðist þingmönnum leyfilegt að setja hvað sem er í frumvarp og það verði bara að skoða eftir á hvort standist stjórnarskrá. Frekar furðuleg yfirlýsing. 

Glundroðin er augljós og þegar formenn láta ekkert í sér heyra þá bendir það til mikillar sundrungar en ekki samheldni eins og sífellt er verið að reyna telja okkur trú um.  Þjösnagangurinn og hrokinn í ráðherrum Viðreisnar er slíkur að þjóðin hefur ekki áður orði vitni af í slíkum mæli. Samt þegir forsætisráðherra sem kemur mér ekki á óvart enda tækifærissinni og vita vonlaus stjórnandi.


mbl.is Guðrún: „Upplausn á stjórnarheimilinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bókun 35 er ekki þráhyggja heldur hluti af samningi sem þarf að fylgja, að minnsta kosti á meðan hann er í gildi. Bókunin hefur verið hluti af EES samningnum frá upphafi og er ekkert nýmæli, það þarf bara að sjá til þess að hún sé rétt innleidd. Það er ekki furðuleg yfirlýsing að þingmenn geti sett "hvað sem er" í frumvarp sem Alþingi svo samþykkir og svo verði að reyna á það fyrir dómstólum eftir á hvort það standist stjórnarskrá, því það hefur margoft gerst og þetta er einmitt rétta leiðin til að leysa úr slíkum álitaefnum.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.6.2025 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og þremur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband