Flótti alþingismanna og annarra frá ábyrgð

Svar Eyjólfs er ekkert annað en flótti frá Ábyrgð. Hann vill ekki taka slaginn í takt við það sem hann sagði áður. Vissulega er stólarnir heitir og gefa vel í vasann þannig að auðvelt er að ýta ábyrgðinni annað. Í þessu tilviki til hæstaréttar.

Svar Þorbjargar er álíka ábyrgðarlaust því það er hlutverk þingmanna að semja lög og sé hægt að bæta hag neytenda þá ætti þeim það varla að vera kápan úr klæðinu. Þetta er ekki bara feluleikur að koma landinu í ESB þetta er ábyrgðaleysi þingmanna.

Ríkissaksóknari er álíka óábyrgð þegar hún heldur því fram að aðrir starfsmenn hafi ekki hringt í Helga vararíkissaksókanara vegna hegðun hans. Þvílíkt ábyrgðarleysi á eigin hegðun.

Öll fórnalambavæðing þessarar aldar er ekki annað en flótti frá ábyrgð og því miður er staðan sú að fólk forðast ábyrgð eins og heitan grautinn.

Alþingismenn takið ábyrgð.


mbl.is Styður bókun 35 og treystir niðurstöðu Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Flokkur Fólksins, sem hét því að standa vörð um Íslensk lög, er nú búin að ganga á sveif með Evrópusinnum !

Það næsta sem við lesum er að Flokkur Fólksins hefur séð nýtt ljós og vill styðja framsal Íslands inn í ESB !

Það er dýrt að vera í stjórn með Samfylkinguni, minnumst þess að Jóhönnustjórnin seldi næstum landið í ánauð v/Icesave !

Svei ykkur Inga Snæland. Fáið ekki mitt akkvæði aftur !

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 25.9.2025 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband