15.12.2007 | 02:51
Hversu lengi má draga athyglina að engu?
Það er alveg ótrúlegt hversu oft Amy Winehouse kemst í fréttirnar. Satt að segja hef ég ekki heyrt eitt einasta lag með henni og langar ekkert að leggja mig eftir þvi. Hún kemst hins vegar alveg ótrúlega auðveldlega í fréttirnar og fær mann til að spekúlera hvað liggur að baki.
Satt að segja held ég að þetta sé heil markaðsdeild sem býr til fréttir úr engu eins og þessari frétt sem eru um nákvæmlega ekki neitt. Amy Winehouse hefur ekkert fram yfir aðrar á markaðinum svo til að auglýsa hana þá er sett upp svaka sjónarspil sem snýr að engu. Já hversu lengi má draga athyglina að engu? Vonandi sem styst.
Þykist vera Amy Winehouse | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.