3.12.2021 | 19:53
Eru sumir rétthærri en aðrir?
Kári viðurkennir að selja upplýsingar þe. ".. að missa alla erlenda samstarfsaðila ..." Því miður Kári þá ólöglegt að selja upplýsingar án upplýst samþykkis og ÍE er ekkert undanþegi því frekar en aðrir. Til hvers að setja lög um slíkt ef á að henda þaim út um gluggann við viss skylirði. Það gerir lögin marklaus.
Nei Kári, nei Kári þú ert ekkert rétthærri en aðrir.
Koma svo í viðtöl til að fá samúð þjóðarinnar gerir glæpinn enn aumkunnarverðari.
Lög voru brotin, punktur.
![]() |
Kári æfur vegna úrskurðar Persónuverndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.12.2021 | 16:40
Má ég veikjast?
Þessi þráhyggja að bóluefni leysi allan vanda við Covid-19 er orðin frekar skrýtin. Í dag á að bólusetja börn niður í 5 ára (heyrst líka 3ja ára). Þetta farið að líta út eins og fólk megi ekki verða veikt. Maðurinn er enginn Guð og getur leyst alla skapaða hluti en við getum nálgast góða lausn. Sú lausn er ekki að eltast við þetta með bóluefnum.
Hvað er eiginlega af því að fólk hafi val um að ákveða hvort veikindi séu betri en bóluefni? Er það svona hættulegt?
Þeir sem eru svona rosalega hræddir verða að eiga það við sig. Það eru fjöldinn allur af öðrum smitsjúkdómum þarna úti sem eru jafnvel verri. Hins vegar virðast þeir skipta litlu máli í dag.
Er ekki kominn tími á skynemi?
![]() |
Bóluefni gáfu góða raun gegn Ómíkron |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2021 | 11:11
Ómíkron á Íslandi
Víst afbrigðið er komið til landsins og sá smitaði engin tengsl við útlönd er þá nokkur þörf á sérstökum aðgerðum á landsmærum vegna þess?
Svarið hlýtur að vera nei en auðvitað er haldið áfram í hræsninni að aðgerðir séu til að koma í veg fyrir að afbrigðið komi inn. Afbrigðið er komið og sá sem smitaðist var ekki í sóttkví, fullbólusettur og allt það. Ættu þá ekki fleiri að vera smitaðir?
Deiliþvælararnir (kallaðir blaðamenn) passa sig að segja bara frá smitum en ekki hve margir þurfa á spítala, veikjast alvarlega eða deyja. Auk þess hefur það sama gerst áður í Suður-Afríku svo af hverju ætti þetta að vera eitthvað öðruvísi?
Sem sagt skrípaleikur af verstu gerð.
Aðeins um grímur víst fólk er svona duglegt að nota þær. Af hverju fækkar þá ekki smitum almennilega ef þær eiga að virka svona vel?
![]() |
Dagleg smit stukku úr 1.275 í 8.561 með Ómíkron |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)