18.10.2023 | 13:00
Mannaguðir loftlags vilja breyta veðri
Þessi skýrsla er vel í anda loftlagsáróðurs þar sem orðið "geta" er í forgrunni. Sem sagt spá um eitthvað sem getur eða getur ekki orðið. Raunveruleikinn gæti sem sagt orðið allt annar. Hvers vegna á þá svona svartsýnisraus að fá að ráða?
Það vill svo til að ekkert land í heiminum hefur sett þetta mál sem aðalforgangsmál þe. í 1 sæti (sjá hér). Einnig virðist sem að þriðjungur fólks hafi einhverja trú á þessu en þó ekki algera.
Förum aðeins yfir málin. Þarna er sagt að jöklar hafi rýrnað um 19% á einni öld en eiga síðan að rýrna meira á næstu 25 árum. Talað er um aukna rigningu og á lengri tíma en ætti þá ekki að kólna þá daga þar sem yfirleitt er kaldara þegar rignir en þegar þurrt? Talað er um að jöklar hverfi og yfirborð sjávar hækki. Mín jarðfræðikennsla kenndi mér að þetta heitir landsig og landris og jú ef jöklar gefa eftir þá hækkar land. Allt tal um yfirborð sjávar hefur samt ekki verið nálægt neinum spám hingað til.
Það er talað um annað veðurfar en fyrir 1000 árum en samt voru jöklarnir minni þá en nú. Loks er talað um sýrustig sjávar sem hættu en mælingar á sýrustigi sjávar eru ekki það gamlar að enginn samanburður er til að sjá hvað gerist við breytt sýrustig. Ein spáin hélt því fram að kólarrifin myndu hverfa en nýlegar fréttir segja annað.
Úttekt úr skýrslunni fjallar ekkert um þéttingu byggðar og áhrif þess á hitafar. Hvernig væri að skoða mæla þar sem aukning byggðar (og aukinn gróður) hefur ekki verið til staðar?
Loks má nefna eldgos en það er ekkert minnst á það í fréttinni en vitað er á stórgos á Íslandi höfðu mikil áhrif á veðurfar.
Menn og konur sem setja sig á guðastall eru kjánar.
Farin að hríslast um allt þjóðfélagið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2023 | 02:16
Fólksfækkun í minnkandi heimi
Lengi vel var látið sem fólksfjölgun í heiminum væri óendanleg en upp úr aldamótum breyttist aðeins tónninn og talaðum hámark 2050. Sú spá virðist ekki vera að rætast og að hámarkinu sé náð og fólksfækkun sé orðin staðreynd. Enn sem komið er fæðingatíðnin rétt yfir 2,1 en er í frjálsu falli síðustu 10 ár og fer líklega niður fyrir það fyrir 2025.
Afleiðingin er að fólki fækkar í heiminum og t.d. í Kína var fólksfækkun í fyrsta sinn í marga áratugi (sjá hér). Japan hefur lengi glímt við lága fæðingatíðni og einnig Evrópa. Nú vill svo til að afar fá lönd hafa fæðingatíðni yfir 2,1 sem er náttúruleg fjölgun.
Spyja á sig hverju valdi en einmitt lokanir í Covid höfðu þær afleiðingar að fæðingatíðni lækkaði mikið og reyndar þvert á spár sérfræðinga. Sem reyndar er ekkert skrýtið því slík stefna gefur fólki enga von.
Vonin um betra líf er það sem ýtir undir fæðingatíðni en í dag er fátt sem ýtir undir spennandi líf. Fyrir því eru nokkrar ástæðaður og þær eiga við um allan heiminn:
- Fjölmiðlar eru sífellt að spá hamförum og dauða jarðar vegna loftlagsmála.
- Stofnanir ríkja og alþjóðastofnanir taka undir spár hamfara.
- Efnahagskerfi heimsins hefur ekki komið með nýjungar í orku eða flutningum í lengri tíma.
- Orka verður sífellt dýrari sem letur fólk til að hagnýta sér hana almennilega.
- Þjóðríki verða sífellt stofnanavæddari sem ýtir undir stöðnun á núverandi ástandi (hnignun)
- Efnahagskerfi sem kemur ekki með nýjungar í orku eða samgöngum er minnkandi kerfi.
Þetta mun gerast á löngum tíma og við munum ekki sjá neitt dramatískt á næstu árum. Þetta eru svo smá skref að við munum líklega ekki sjá breytingu næstu 30 árin í það minnsta. Það er samt vandséð að við komumst eitthvað áfram þe. að stækka aftur nema nýjungar í orkumálum komi til. Framfarir verða ekki nema með ódýrri orku og með því að hafna notkun hennar liggur leiðin niður á við.
Mín spá er reyndar að þjóðríki munu hverfa frá þessari dýru orkustefnu með vindmyllum og sólarorku. Það mun samt ekki vera nóg til að breyta niðurstöðunni um minnnkandi umsvif efnahagslega. Fólki fer fækkandi í heiminum og það verður svo dýrt að reka kerfin sem verða ekki sjálfbær. Sjálfbærnimarkmið sameinuðu þjóðanna er einmitt til þess fallin að minnka umsvif þjóðríkja enda gott dæmi um stofnanavæðingu.
Kannski er þetta eðilegt náttúruval!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2023 | 15:25
Á hvaða sumbli er Gulli loftlagsráðherra
Guðlaugur Þór sér um loftlagsmál í ríkisstjórn landsins og virðist ekki vita hvað snýr upp né niður í þessum málum. Hér má sjá samantekt af ræðu ráðherra á fundi Landsvirkjunar.
Hann staðhæfir að Ísland þurfi að standa við Kyoto bókunina þótt ansi mörg önnur lönd sleppi eða ætla ekki að standa við hana. Hverjum á að borga er svo eitthvað sem enginn veit. Þar kemur fram að við þurfum að ná niður um 40% til að standa við skuldbindinguna.
Nú vill svo til að við virðumst vera auka útblástur og hann nefnir fiskimjölsverksmiðjum, húshitun og bíla. Gleymir því auðvitað að enginn kvóti hefur verið gefinn út fyrir loðnu svo næsta ár gæti snarminnkað útblástur. Loks nefnir hann bíla sem eru með 6% af útblæstrinum og mest selst af rafbílum hér á landi. Hvernig jókst þá útblástur bíla? Líklega með fleiri ferðamönnum en hann minnist ekki orði á flugið sem er einna stærsti útblásturaðilinn í öllu dæminu.
Loks vill hann meina að við þurfum að kaupa kvóta ef við lækkum ekki meira en talar ekkert um að hætta sölu kvóta frá landinu. Hvað ef við hættum að selja kvóta úr landi, hversu nálægt erum við þá þessum markmiðum?
Allt sem hann segir þarna er gott dæmi um hversu grunnhyggið loftlagsmálin eru. Það er talað um þau eins og séu eyland þar sem sumt hefur afleiðingar en ekki annað. Heildarmyndin er ekki til staðar.
Innantómt þvaður í ráðherra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2023 | 15:18
Nefndir og stofnanir gera ekki betur
Bjarni er annar ráðherrann sem segir af sér eftir að nefnd eða stofnun hafi unnið vinnu sem átti að varna að ráðherra nýti sér það. Þannig átti nendin sem valdi dómara í Landsrétt að vinna betur en ráðherrann. Sama á við um bankasýsluna sem átti að vinna betur en ráðherra að sölu bankans.
Bjarni er að senda þau skilaboð að þetta virkar ekki og hægt að spara miljarða með þessu skollaleik. Í raun er verið að henda peningum út um gluggann. Svandís skipaði nefnd um sjávarútveg sem skilaði af sér doðrant en samt ætlar hún í sólóleik sem skýrslan mælti ekki með. Tilhvers var nefndin þá láta skrifa doðrantinn?
Það er kominn tími að á afkommúnistavæða Ísland (og Bjarna líka).
Bjarni, Katrín og Sigurður báru saman bækur sínar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2023 | 10:45
Skaðræði heft málfrelsis
Á Akureyri virðist stíf stefna um að hefta málfresli, sér í lagi kennara. Frægt er þegar Snorri í Betel var rekinn ólöglega vegna bloggskrifa. Nú er annar kennari hrakinn af formannsstól í kennarasambandi. Hvers vegna kennarinn, Helga Dögg Sverrisdóttir, má ekki skrifa um trans málefni og vitna í greinar frá öðrum löndum til að sýna fram á að málefni er ekki einhliða. Þetta virðist fara ákaflega illa í suma sem nota afl sitt að hrekja í burtu en auðvitað þagga ekki í henni.
Það má svo sem efast um að gjörningurinn sé löglegur því yfirleitt þarf dagskrá fundar að liggja fyrir tveimur vikum fyrir fund og hvernig á þá að vera hægt að bera upp breytingatillögu og kjósa á sama tíma?
Þetta er samt vel í anda útskúfunar sem notuð er á þá sem setja efann á stefnu í trans málum. Sú leið að takir þú ekki þátt í stefnu trans málefna þá ertu útskúfaður. Ljót framkoma og er ekkert annað en ofbeldi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2023 | 12:12
Þjóðverjar opna kolaorkuver - er hamfarhlýnun lokið?
Hér er frétt um að Þjóðverjar ætli að opna aftur kolaorkuver. Þeir virðast sjá ljósið eða réttara sagt vilja hafa ljós í vetur. Raunsæið er að kenna þeim að orkuleysið er að gera út á við þjóðina og þeir hafi verið hafðir að fíflum með grænni stefnu.
Afleiðing stefnunnar um grænni orku og hreinna andrúmsloft hefur skilað hreinna andrúmslofti og það með því að nota meira af olíu og kolum. Vissulega er hreinna andrúmsloft betra en reykmettað en af hverju getur fólkið á bakvið grænu stefnuna viðurkennt breytingarnar?
Því er stöðugt haldið fram um hamfarahlýnun og mengun eins og ekkert hafi áunnist síðust áratugi. Þetta er rangur málflutningur og er að valda því að fólk hverfur frá boðskapnum. Sem er í finu lagi því boðskapurinn er rangur. Notkun á jarðeldsneyti drepur ekki jörðina heldur bætir líf á jörðinni.
Í bókinni Fossil Future eftir Alex Epstein fjallar hann um jákvæða notkun á jarðeldsneyti og við ættum að auka (og munum) notkun þess. Finnst bókin reyndar frekar leiðinleg, of mikið um endurtekningar. Innihaldið er samt gott og hann færir góð rök fyrir máli sínu. Jarðeldsneyti skilar betri lífi en án þess.
Staðreyndin er sú að öfgar skila tímabundið ákveðinni niðurstöðu en til lengdar tekur raunsæið og raunveruleikinn við. Öfgafull græn stefna er helferðastefna sem mun ekki skila neinu nema sundrung og erfiðu lífi.
Jákvætt skref hjá þjóðverjum höldum okkur við ódýra og skilvirka orku.
Uppfært 13:23
Rakst á þessa frétt á visi.is sem endar á þessari setningu:
"Sérfræðingar segja veðurfarsbreytingar hafa gert flóð tíðari á norðanverðu Indlandi, þar sem jöklar séu að bráðna sífellt hraðar."
Sá sem ekki sér rökvilluna í þessu ætti að leita sér hjálpar til að læra lestur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2023 | 22:09
Hitatölur einar og sér segja lítið um loftlagsmál
Þessi frétt (eða réttara sagt áróðursfrétt) segir frá því að aldrei hafi mælst hærri hiti á Spáni í Október. Gott og vel ekkert út á það að setja enda einungis tölur teknar af mæli. Getur verið að meira hafi verið byggt í kringum mæla, meiri gróður, meira skjól eða endurvarp á sólaljósi sem hefur áhrif á hitamæli. Það er niðurlagið sem eyðileggur alveg boðskapinn þegar þarf að staðhæfa að skógareldar séu að aukast þrátt fyrir að opinberar tölur segja allt aðra sögu. Enda er staðhæfingin sett fram án allrar tilvitnunar nema að ónefndur sérfræðingur segir svo vera.
Rökleysan í málflutningnum um loftlagsmál kemur vel fram í þessari grein á vísi þar sem fjallað er um Torfajökul og spáð að hann hverfi á næstu 2-3 áratugum. Þarna er rætt við jöklasérfræðing sem lýsir hvernig jökulinn minnkar vegna aukins hita. Samt sem áður þá minnkar rigningin ekki sem gæti þýtt að lækki hitastig aftur þá snjói meira, ekki satt?
Þversögnin í málflutningnum er að horfa á ferli sem línulaga. Algengustu mistök sem gerð eru þegar horft er í tölfræði. Það er hægt að finna línulega fylgni en hún sýnir okkur ekki sveiflur sem verða á tímabili. Segja má að það sem fer upp fer aftur niður en með málflutningi um sífellt heitara, meiri þurrkur, óveður og svo framvegis er verið að taka línulegt samband og áætla. Því miður getur línulegt samband ekki spáð fyrir um framhald en getur gefið vísbendingu. Af hverju setja menn þá þessar vísbendingar sem dauðadóm eða útrýmingu eins og í greininni á vísi.is.
Þegar horft er svona neikvætt á hlutina þá missirðu af hinu jákvæða sem hefur gerst. Mannkyn í dag hefur það miklu betra en fyrir öld síðan þrátt fyrir hærra hitastig. Hvernig væri að fjalla um það?
Hitabylgja á Spáni slær met | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2023 | 19:05
Rafhlaupahjól eru rúllandi stórslys
Hlaupahjól eru ekki hönnuð til að vera rafhjól. Þau ganga alveg upp þegar önnur löppin sér um að knýja hjólið áfram. En þegar rafbúnaði er bætt við og staðið er á hjólinu þá er slysahætta allveruleg og oftar en ekki stórslys þar sem oftast hendist einstaklingur fram á við. Þá getur verið fátt um bjargir þar sem hendurnar halda um stýrið.
Með réttu ætti að banna þessi hjól og endurhanna þannig að þyngdarpunkturinn færist aftar svo meiri líkur séu að einstaklingar sem noti hjólin lendi til hliðar.
Ótrúlegast er samt að allt fólkið sem vill banna hitt og þetta í nafni mannúðar, það heyrist ekki baun í þeim um þessi rafhlaupahjól.
Sólveig kom að skelfilegu rafhlaupahjólaslysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2023 | 10:32
Hverning sjáum við heiminn og okkar nánasta umhverfi
Þekkt er að við sjáum heiminn með mismunandi augum og segja má að það sé einstaklingsbundið hvernig við skynjum umhverfið í kringum okkur. Hins vegar á fólk til að flykkjast um ákveðnar leiðir og þá er vel hægt að efast um einstaklingsbundin skilning á umhverfinu.
Þessi dægrin þá er uppi sú hugmynd að kynin séu fleiri en tvö þótt sá skilningur hafi fylgt mannkyni hingað til. Lífræðin skilgreinir allt líf í tvö kyn þar sem æxlun á sér oftast stað með blöndun kynja (það eru til dæmi um æxlun á blöndun kynja en mjög sjaldgæft). Þessi hópur sem telur að kynin séu hugmynd, sem megi koma til eftir hentugleika, hefur talið fjölda kyna allt að 80. Við lestur slíkrar greinar þá kemur fljótt í ljós að mismunurinn milli skilgreininga er nánast enginn í flestum tilvikum.
Þessi deila minnir mig á deilu úr mannfræði þar sem tveir fræðimenn deila um hvernig ættbálkur kemur fyrir. Þeir voru á svipuðum tíma á staðnum og rannsökuðu sama ættbálk en ekki í sama þorpi samt. Hægt er að sjá heimildamynd á Netflix (The Secrets of tribe) sem kemur inn á þessa deilu. Niðurstaða þeirra var að annar sá þetta sem árásagjarnt fólk sem bar enga virðingu fyrir öðrum ættbálkum. Hinn sá þetta sem elskandi fólk og vildi vera í samskiptum við aðra. Hvor hafði rétt fyrir sér?
Ég held mig við að kynin séu tvö enda er það grunnur að fjölgun lífs. Allt annað eru sérhópar sem vissulega mega stunda það sín á milli en alger óþarfi að blanda þjóðfélögum inn í þann hóp. Ef þetta fólk vill að sín sérviska sé viðurkennd þá verður það að viðurkenna að aðrir hafa sína skoðun á hlutunum. Virðing fæst með að virða aðra án þess að krefjast einhvers til baka. Allt ofbeldi er ólíðandi en er það ekki ofbeldi að krefjast þess að viðurkenna að kynin séu fleiri en tvö?
Við skynjum heiminn á mismunandi hátt en samfélagsmiðlar hafa ýtt undir og ýkt lokaða hópa til að halda þeir séu stærri en þeir eru. Fjölmiðlar bæta ekki þar úr þegar þeir lepja greinar frá hverjum öðrum eða vitna í samfélagsmiðla. Við erum vitni að menningarstríði þar sem litlir hópar telja að heimurinn snúist um þá og það sé leyfilegt að nota hvaða aðferðir sem er til að koma öðrum í sama skilning.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2023 | 15:05
Fögur er hlíðin en hvar er raunsæið
Dagur mjög góður með sig og segir: Við erum í miðju kafi við að ræða uppfærslu á samgöngusáttmálanum. Þar eru tímalínur aðeins að færast til, að öllum líkindum, en Keldnalandið á að skapa tekjur fyrir samgöngusáttmálann. Þetta hangir saman. Eftir því sem við fáum borgarlínuna fyrr upp í Ártúnsholt og síðan upp á Keldur þeim mun fyrr getur hverfið orðið til og farið að skila tekjum fyrir öll hin samgönguverkefnin sem eru hluti af pakkanum,
Sem sagt það skal troða ofan í okkur borgalínu hvað sem raular og tautar en er það raunsætt.
Mitt svar er nei og þetta hverfi er langt frá því að vera lykilinn að borgarlínu.
Víkjum aðeins að hugmyndinni sjálfri. Þetta lítur voða fallega út og allt virðist í góðu lagi. Kolefnishlutleysi næst (veit ekki samt ekki hvað það er) og allir voða glaðir að búa þarna og nota borgalínu Dags.
Kolefnishlutleysi næst ekki því öll framleiðslan skapar kolefni, alveg sama hvaða efni er notað. Sé það reiknað út með gróðusetningu trjáa þá kannski næst það kannski á einni öld. Ef þetta á að vera bíllaust hverfi þá á eftir að koma í ljós hvar fólk geymir bílana sína.
Loks er sett upp voða flott mynd við sjóinn en síðast þegar ég vissi þá nær sjórinn rétt upp að landi 2x á sólarhring inn í botni fjarðarins í háflóði. Jafn oft þá fjarar út og enginn sjór þá sjáanlegur. Væri ekki gaman að fá eina slíka mynd?
Raunsæið segir manni að fólk vilji hafa bíl. Ef það á að opna gallerí og litlar sérverslanir við sjávarsíðuna þá vill fólk komast þangað á bíl.
Meðan Dagur er í borgarstjórn þá bíður raunsæið betri tíma!
Keldnaland á að skapa tekjur fyrir sáttmálann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)