24.4.2022 | 23:45
Skipulagsleysi meirihluta Reykjavíkurborgar
Það er frekar hlægilegt að lesa þessa frétt um manneskju sem hefur í 4 ár verið í meirihluta í Reykjavík en vaknar ekki fyrr en 3 vikum fyrir kosningar. Gefum henni orðið:
"Segir Dóra það ekki ganga að þurfa að treysta á það að kjörnir fulltrúar grípi svona yfirsjónir á fundum skipulags- og samgönguráðs eða að það fari eftir metnaði einstakra verkefnastjóra hvernig framkvæmdin verður útfærð með tilliti til umhverfissjónarmiða og markmiða um græna borgarþróun. Þess vegna sé mikilvægt að setja einhvern ramma í kringum hvernig framkvæmdir eru skipulagðar."
Setja ramma í kringum framkvæmdir? Þýðir þetta að gert er útboð án þess að liggi fyrir hvað verði gert?
Ekki nema vona að allt sé í klúðri hjá Reykjavíkurborg því enginn virðist fylgjast með því sem er verið að gera. Hvað halda þessir kosnu fulltrúar að þeir eigi að vera gera?
Af fráfarandi tímabili þá stóð Vigdís sig frábærlega, Kolbrún var vakandi en restin svo steinsofandi að það hefði alveg eins verið hægt að setja á sjálfstýringu.
Á erfitt með að trúa að íbúar Reykjavíkur vilji þetta áfram.
Hjólar í staur og segir Hafnartorg klúður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála, Sýnist í raun Dóra vera að gagnrýna sjálfa sig !
Verkstjórinn, Dagur B ber ábyrgð á öllu sem gert er.
Vonandi sér fólk bullið sem hefur verið að ske hjá honum, ss Bragginn frægi, og bruðlið á Hlemmi.
Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 25.4.2022 kl. 06:47
Spurja má líka hvað hafi komið út úr 12.000.000.000 verkefninu Stafræn Reykjavík sem er klárlega gæluverkefnið hennar Dóru
og hún þar að auki formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs
Grímur Kjartansson, 25.4.2022 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.