Skipulagsleysi meirihluta Reykjavíkurborgar

Það er frekar hlægilegt að lesa þessa frétt um manneskju sem hefur í 4 ár verið í meirihluta í Reykjavík en vaknar ekki fyrr en 3 vikum fyrir kosningar. Gefum henni orðið:

"Seg­ir Dóra það ekki ganga að þurfa að treysta á það að kjörn­ir full­trú­ar grípi svona yf­ir­sjón­ir á fund­um skipu­lags- og sam­gönguráðs eða að það fari eft­ir metnaði ein­stakra verk­efna­stjóra hvernig fram­kvæmd­in verður út­færð með til­liti til um­hverf­is­sjón­ar­miða og mark­miða um græna borg­arþróun. Þess vegna sé mik­il­vægt að setja ein­hvern ramma í kring­um hvernig fram­kvæmd­ir eru skipu­lagðar."

Setja ramma í kringum framkvæmdir? Þýðir þetta að gert er útboð án þess að liggi fyrir hvað verði gert?

Ekki nema vona að allt sé í klúðri hjá Reykjavíkurborg því enginn virðist fylgjast með því sem er verið að gera. Hvað halda þessir kosnu fulltrúar að þeir eigi að vera gera?

Af fráfarandi tímabili þá stóð Vigdís sig frábærlega, Kolbrún var vakandi en restin svo steinsofandi að það hefði alveg eins verið hægt að setja á sjálfstýringu.

Á erfitt með að trúa að íbúar Reykjavíkur vilji þetta áfram.


mbl.is Hjólar í staur og segir Hafnartorg klúður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála, Sýnist í raun Dóra vera að gagnrýna sjálfa sig !

Verkstjórinn, Dagur B ber ábyrgð á öllu sem gert er.

Vonandi sér fólk bullið sem hefur verið að ske hjá honum, ss Bragginn frægi, og bruðlið á Hlemmi.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 25.4.2022 kl. 06:47

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Spurja má líka hvað hafi komið út úr 12.000.000.000 verkefninu Stafræn Reykjavík sem er klárlega gæluverkefnið hennar Dóru 

og hún þar að auki formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs

Grímur Kjartansson, 25.4.2022 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband