Af hverju ekkert um reynslu annarra þjóða af vindmyllum

Í þessari fréttatilkynningu kemur fram að skoðaðar voru reglur og reglugerði en hvað með reynslu annarra þjóða af vindmyllum?

Er skoðað að raforkuverð hefur margfaldast í Noregi þrátt fyrir góðar vatnsvirkjanir. Er skoðað að Skotar borga til að loka á framleiðslu vegna þess að innviðir ráða ekki við svona mikla orku?

Hvernig væri að byrja á byrjunni:

- Skoða reynslu annarra þjóða

- Skoða hvernig/hvort kostnaður lendir á neytendum

- Skoða hvernig skattpeningar eru notaðir til að greiða úr málum

- Skoða þörfina umfram vatnsvirkjanir

- Skoða hvort þetta mengi meira en vatnsvirkjanir

- Skoða áhrif þess á umhverfið t.d. hvort landið sé í raun afturkræft

- Skoða hver borgar að taka þetta niður og sjá til þess að landið sé afturkræft

- Skoða hvort náttúra Íslands geti tekið við þessu

 

Það eru svo margt ósvarað við það að setja upp vindmylluver (ekki vindmyllulund) að við eigum heldur betur að svara svona aðilum sem halda að þetta sé ekkert mál. Áhrifin eru of mikil til að þetta sé gert sem eitthvað léttmeti og þarfnast áreiðanlegra svara.


mbl.is Staðsetningin helsta álitamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er allt vitað, hafandi verið p´rofað af öðrum.  (Með eing0ngu slæmum niðurstöðum í öllum tilvikum.)

En, það sem mun gerast er að ríkið segir "Fokk þú og borgaðu."  Svo fer allt á sama veg og allstaðar annarrstaðar, vegna þess að "sér-íslenskar aðstæður" eru jafn sér-íslenskar og blautt vatn.

Þú veist það.

Ásgrímur Hartmannsson, 24.4.2023 kl. 21:41

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Rétt Ásgrímur, alltof margir alþingismenn eru uppteknir að herma eftir öðrum löndum alveg sama hver niðurstaðan er. Halda að við getum gert þetta eitthvað betur. Vasar skattgreiðenda eru endalausir, er það ekki?

Rúnar Már Bragason, 24.4.2023 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband