14.11.2014 | 08:26
Réttast væri einnig að reka stjórnina
Ég er sammála Sveinbjörgu þarna að framkvæmdastjóranum er ekki sætt lengur þar sem hann rýfur trúnað. Fólk heimtar að Hanna Birna beri ábyrgð á undirmanni sínum svo að stjórn Strætó hlýtur að bera ábyrgð á undirmanni sínum og segja öll af sér hið sama.
Þetta fólk sem þarna vinnur verður að opna augun og sjá að það starfar í opinberu fyrirtæki sem eru peningar skattborganna. Þannig gengur reksturinn fyrst og fremst út að þjónusta fólkið sem notar almenningsvagna en ekki sérhagsmuni. Stjórnin á setja gott fordæmi og reka framkvæmdastjórann og síðan segja af sér fyrir ábyrgðalausan samning við framkvæmdastjórann.
Vill láta reka framkvæmdastjóra Strætó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tek undir þetta, auðvitað hefur allt þetta fólk þ.e. stjórnin og forstjórinn brotið trúnað gagnvart atvinnurekanda sínum fólkinu í Reykjavík. Til hvers heldur fólk eiginlega að það sé skipað í stjórnir félaga ef ekki til að sinna því starfi af festu og heiðarleika, en ekki láta bara reka á reiðanum eins og virðist hafa verið gert þarna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2014 kl. 08:44
ÞVI MIÐUR ER ÞETTA BARA SVONA NU TIL DAGS UT UM ALLT.VEL SAGT RUNAR. VIÐ VERÐUM AÐ VERA VAKANDI JAFNVEL MEÐ VAKTA SKIPTI.
Deane Júlían Scime (IP-tala skráð) 14.11.2014 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.