Er hægt að snúa hlutunum meira á hvolf?

Vandi demókrata í bandaríkjunum er að þeir halda að þeir einu hafi aðgang og vinni eftir lýðræðislegu kerfi. Svipuð hugsun er að finna meðal margra flokka á Íslandi sem vilja telja sig til vinstri.

Það á enginn lýðræðið og það snýst um leikreglur. Í dæmi demókrata þá brjóta þeir í sífellu þessar leikreglur í nafni lýðræðis t.d. í Úkraínu.

Annað dæmi er að ekki þarf skilríki til að veita sönnur á sér þegar kosið er, þú getur bréfsent atkvæði þitt og mátt kjósa oftar ef ferð á milli fylkja. Hvers konar lýðræði er það?

Demókratar eru sjálfir sér verstir, stríðsæsingafólk sem heldur að það eigi að stjórna heiminum en sendir allt í sífellt dýpra fen.

Ég spái því að í næstu viku þegar repúblikanar hafa sigrað þingið að þá fjari undan stríðinu í Úkraínu. Af hverju? Jú pólitískt til að setja Biden í vandræði og til að geta einbeitt sér betur að heimalandinu. Fjármunum er betur varið að styrkja varnir kringum bandaríkin (það er ekki endalaust hægt að prenta peninga). Með því leggja þeir línuna um að vinna forsetaembættið aftur.


mbl.is Afneitun repúblikana „leið í átt að stjórnleysi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Hárrétt. 

Birgir Loftsson, 3.11.2022 kl. 12:32

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég er sömuleiðis sammála þér og er spenntur að sjá hvort spá þín varðandi stríðsreksturinn í Úkraínu rætist.

Jónatan Karlsson, 3.11.2022 kl. 17:41

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Demókrataflokkurinn er ekki til vinstri. Hann er í raun lengra til hægri en nokkur íslenskur flokkur. Ég skal því umorða þetta fyrir þig:

Vandi demókrata er að þeir halda að þeir einir hafi aðgang að og vinni eftir lýðræðislegu kerfi. Svipaða hugsun er að finna meðal flokka á Íslandi sem eru næstum jafn langt til hægri.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.11.2022 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband