Er það ekki sama og sagt var fyrir sex mánuðum?

Ég man ekki betur en fyrir hálfu ári var sagt að bólusetningin væri leiðin úr faraldrinum en nú þarf allt í einu að bæta við skammti. Hvað ef það virkar ekki og þessi örfáu sem hafa smitast veða allt í einu mjög margir?

Þórólfur talar um á Bylgjunni að ráðamenn eigi að vera sammála honum en ekki tala í aðra átt, það sé svo ábyrgðalaust. Hvar er ábyrgð hans? Á sex mánuðum er hann farinn að endurtaka sig með sömu rullunni. Get ekki alveg séð að það sé mjög ábyrgt.

Þórólfur féll auðvitað á prófinu í krísustjórnun um síðusta sumar. Það að halda að gera sama hlutinn aftur og aftur leiði til nýrrar niðurstöðu er kolrangt. Það er kominn tími á nýja nálgun eins og að stækka gjörgæslu og rými fyrir þá sem þurfa.

Þessi vælandi úlfur í hálfan mánuð á ekki að ráða hvernig einstaklingar haga sínum málum. Hann hefur engan rétt til þess né er að koma okkur út úr þessu. Hvað með að veiran átti að veikjast með tímanum? Af hverju heyrum við ekkert um það? Alltaf ný og ný afbrigiði sem eiga að vera svo hættuleg. Samt veikist fólk minna og er styttra á sp+tala. Einmitt rímar vel við að veiran veikist.

Næstu skref Þolórlfs hlýtur að vera að fara leiðina í Hollandi að þurfa sýna bólusetningarpassa við öll tækifæri og jafnvel umræða um að þurfi í matvörubúðir. Hvar eru mannréttindasamtök? Eighum við bara að samþykkja að lágmarks mannréttindi séu brotin í sífellu? Er næsta skref að banna óbólusettum að fara út?

Nei Þórólfur, þinn tími er liðinn og aðferðir þínar komnar í öngstræti.


mbl.is Skammtur þrjú gæti verið leiðin út úr faraldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama gamla tuggan

Nýverið setti Who fram að þyrfti nýjar aðgerðir til að takast á við Covid en hvað er gert hér á landi?

Nákvæmlega sama og áður. Án þess að færð séu nokkur rök fyrir því að þetta virki. Smit fara kannski niður en er það vegna aðgerða eða vegna þess að smit fara niður hvort sem er.

Hvaða vísindalega nálgun er það að gríma í tómri búð hafi einhverja vörn? Eða gegn í stórri verslun þar, tala við engan, né nálægt neinum virki yfir höfuð.

Hvernig væri að fara spyrja þetta fólk hvað hafið þið fyrir ykkur að þetta virki?

Á sama tíma má vísa til tölfræði í USA sem sýnir að smit fara niður hvort sem eru aðgerðir eða engar. Hversu vel upplýst er þetta fólk?

Groundhog day og lélegt upplýsingaflæði er vandamálið og þjóðin skal þjást en almenningur fær ekki að passa sig sjálfur.

Æla!


mbl.is Ólíklegt að aðgerðir skili árangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er gjörgæslan ekki stækkuð?

Nú þegar kemur mikil fjölgun milli daga þá panika margir og vilja loka loka og loka. Sestja upp taugrímur og halda að það hjálpi eitthvað.

Forgangur hlýtur samt að vera að tryggja nægjanlegt sjúkrarými og setja þá aukakostnað í það. Nei ekki á Íslandi þar skal lokað og eyða miljörðum í bætur venga lokanna í stað þess að forgangsraða öðruvísi.

Lokanir duga í skaman tíma en síendurteknar lokanir eða í lengri tíma virka ekki. Því miður þá er það staðreyn sem ég þori að fullyrða um. Mannleg hegðun, jafnvel á stríðstímum, býður ekki upp á endalausar lokanir. Fólk tekur áhættu og þar með minnkar virkni lokanna.

Þórólfur segir að miðað við smit í dag ættu 3 að leggjast inn. Hver fylgir því eftir að sjá hvort hann hafi rétt fyrir sér. Í annan stað sagði Már að sjúklingar stoppi stutt en Þórólfur minnist ekkert á það. Með því mætti ætla að við séum ekki í sömu sporum og áður varðandi spítlann.

Fækkun sjúkrarúma er vegna styttri legutíma eftir aðgerðir en ættu þá ekki aukarýmin að færast þar sem þeirra er þörf, eins og á bráðamótökuna. Nei þeim er bara hent út. Forgangsröðunin á spítlanum er gersamlega út í hróa og meiri peningur er ekki svarið.

Að lokum mætti fórlk spyrja sig: Af hverju fjölgar smitum í Svíþjóð núna ekki að sama marki og löndum sem loka?


mbl.is Hefur lagt til hertar takmarkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eina???

Þegar notuð eru orðin "það eina" þá er verið að setja algildisdóm, drama, þar sem einstaklingur sér ekki aðra leið, þótt hún sé yfirleitt í boði.

Þetta þýðir líka að Þórólfur er kominn á endastöð og veit ekkert hvað hann eigi að gera til að takast á við vandann. Leitar því í sama horfið aftur og aftur og vonast eftir annrri niðurstöðu.

En eins og ManUtd komst að um síðstu helgi þá þýðir ekki að gera það sama aftur og aftur og halda að önnur niðurstaða birtist.

Grímur virka ekki, tvö tilvik með fjölda smita á spitala sína það. Spítali sem má ekki útvista verkum, eins og einföldum skurðaðgerðum, er ekki spítali allra landsmanna.

Tími Þórólfs er liðinn og kominn tími á að spítalinn finni nýjar lausnir á vanda sínum svo þeir verði sveigjanlegri. Auknir peningar eru ekki eina svarið því þetta snýr einnig að skipulagi.

Ekki mitt að finna lausn en megum alveg þreyja þorrann og finna lausn til að gera spítalann sveigjanlegri. Ólíðandi að öll þjóðin þurfi að líða fyrir gagnslausa grímunotkun og takmarkanir sem virka ekki lengur vegna þess að þær virka einungis tímabundið (sá tími er liðinn).

E.S. ég hef enga þörf fyrir að stunda skemmtanalífið á næstunni svo færslan snýst ekkert um það.


mbl.is Þórólfur segir að það sé ekki til nein töfralausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fastir í eigin vítahring

Nú þegar fjölmiðlar nenna ekki að hringja í Þórólf á hverjum degi þá þarf að stofna blogg fyrir kallinn svo svartnættið fái að enn sinn hljóm. Finnst það ekki vera upplýsingadálkur að fara yfir stöðuna á hverjum degi. Svona upplýsingar nægja alveg einu sinni í viku og þá hvort sé á uppleið eða niður.

Í annan stað þá segi ég enn og aftur að þessu liði átti að skipta út um síðaustu áramót. Leiðir þeirra og lausnir eru flestar orðnar: "Þetta er eina leiðin" sem virkar illa í sóttvörnum. Í fyrstu var nálgast máliin með opnum huga en þeim mun lengra sem þetta dregst þá forherðist liðið.

Staðreyndin er sú að með sprautusullinu þá var talað um 95% vörn og því ætti ekkert furðulegt að vera við það að 10 þús manns smitist ef 200 þús eru búnir að fá sprautur. Það er einhvernveginn alveg flautað framhjá þessari staðreynd þegar talað er um hvort sullið virki eða ekki. Skiptir þá engu máli hver hefur skoðaun á málinu.

Spítalinn heldur því enn og aftur fram að annar en starfsmaður hafi smitað nokkra sjúklinga. Þrátt fyrir blessaðar grímurnar þá tókst samt að smita nokkra sjúklinga og það af aðstandenda?????

Sem sagt grímur virka ekki og fækka ekki smitum, það er alveg ljóst. Sprautaðir smita enda kjánalegt a halda öðru fram áður en var sprautað, þe. 95% vörn.

Ekki ætla ég að lesa þetta blogg hans Þórólfs en fæ líklega marga statusana á fréttamiðlum sem apa upp án spurninga. Ég á mér líf.

Þinn tími er kominn Þórólfur.

Lifum lífinu lifandi!


mbl.is Þórólfur ómyrkur í máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræður aukið byggingarmagn í Mosfellsbæ frekar við það?

Hvers lags eindæmis bull kemur frá þessu manni þegar kemur að umferðamálum. Það má ekki byggja í Keldnalandi af því að umferðin ræður ekki við það. Hvernig væri þá að skipuleggja umferðamannvirki svo það gangi upp. Hvað með aukna byggð á Akranesi og í Mosfellsbæ. Hvernig ræður umferðin við það?

Að þráhyggjast í því að borgarlína reddi einhverju í því máli er einungis verið að fara undan í flæmingi.

Í Reykjavíkurborg á ekki að vinna út frá lausnum heldur kreddum! Sem betur fer þarf ég sjaldan að fara vestan Kringlumýrabrautar.


mbl.is Miklabraut ráði ekki við byggð í Keldnalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frítt en ekki frjálst.

Svo sem ekkert nýtt sem þessi kona er að færa fram, búið að vera í umræðunni sl. 2 ár. Nema hún kemur með sannanir sem auðvitað fyrirtækið afneitar.

Allt voða fyrirséð.

Helsti veikleiki Fésbókarinnar hefur alltaf verið að hafa frían aðgang. Sem þýðir að engu er hægt að stjórna. Því meira sem reynt er að stjórna þeim mun líklegra er að notendur leita annað og nóg annað er í boði. Eftir að þeir hófu ritskoðun, að minnir þegar Metoo stóð sem hæst, þá hefur leiðin þrengst og legið nður á við.

Setja má upp helstu fyrirtækin svona:

Facebook - fyrir gamla fólkið (í hugum unga fólksins 40 ára og eldri)

Instagram - Alls enginn raunveruleiki

Twitter - Dómarar götunnar sem halda að aðrir deili skoðunum þeirra eða séu meðhlægjendur

Snapchat/Tik Tok - Áminningum hvað hversdagleikinn er leiðinlegur

Google - Njósnari alheimsins

Það er hægt að hagnýta sér þessa hluti en þú ert varan og borgar á einn eða annan hátt. Hafðu það í huga.


mbl.is Sakar Facebook um að velja hagnað fram yfir öryggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolrangt viðhorf

Af hverju er það fyrir neðan virðingu einhvers að vinna tímabundið verkamannastarf eða afgreiðslustarf þrátt fyrir að hafa háskólamenntun?

Alveg ótrúlega fáránlegt viðhorf til menntunar og lífsins. Eins og það sé einhver ávísun á ákveðið starf að mennta sig og megi ekki vinna neitt annað, nema sé samboðið samvisku einstaklinga.

Sjálfur er ég háskólamenntaður en að halda að einhver vinna sé mér ekki samboðin hefur mér aldrei nokkru sinni dottið í hug.

Ekki einu sinni hroki getur útskýrt svona viðhorf.


mbl.is Fyrir neðan virðingu kennara að starfa í ísbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gera það sama og vonast eftir öðrum árangri

Þessi fyrirsögn á best við um aðferðafræði Hafrannsóknarstofnunar á stofnstærð fiska á Íslandsmiðum. Í rúm 50 ár hefur verið notast við sömu grunnaðferðina við að meta stofnstærð. Smávægislegar breytingar hafa verið gerðar og stærstu 2001 eða fyrir 20 árum síðan.

Að halda því fram að önnur niðurstaða fáist með að notast við sömu aðferðafræði, án þess að endurskoða og betrum bæta aðferðina, gengur hreinlega ekki upp. Það er ekki í anda vísindalegrar nálgunar.

Það eru flottir vísindamenn sem vinna við stofnunina og skrifar góðar greinar. Því miður rata þær ekkert nálægt aðferðafræðinni og því verða engar breytingar.

Næstu 50 árin veiðum við þetta 200 - 300 þús. tonn á ári, vegna óbreyttrar aðferðafræði.

 


mbl.is Töluverð frávik í mati Hafró – þorskstofninn minni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki nærri Víkingssvæðinu?

Þessi þráhyggja að það þurfi að slíta dalinn í sundur með riasamannvirki er fáránleg. Líkt og flest sem kemur frá borgarstjóra þá er ekkert umhverfisvænt að slíta sundur dalinn. Miklu nær væri að tengja þetta við Víkingsvæðið enda er það í göngufæri við báða skólana. Það er langbesti staðurinn án þess að rjúfa dalinn.

Miklu frekar ætti að gera enn meira úr því að hafa dalinn sem almenningsgarð, líkt og Kópavogur hefur gert sín meginn,  og byggja ekki meira í dalnum heldur við jaðarinn. Úr Efstaleiti er alls ekki langt að ganga í sund við Víkingsvöll, tæki í mesta lagi 15 mín. og það á við um alla íbúa Fossvogsdalsins. Því spyr ég af hverju ekki að byggja við Víkingsvöll?


mbl.is Ætla að finna stað fyrir Fossvogslaug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband