Ró og yfirvegun

Ný flytja fjölmiðlar fréttir af daglegum smitum eins og kappleik sé að ræða og í framhaldi fer kórinn af stað um hertari aðgerðir og hvað þetta er allt saman erfitt.

Í byrjun faraldsins þá var ró yfir mannskapnum og tekið á málunum eins og best var talið á þeim tímapunkti. Eftir því sem faraldurinn dregst minnkar þessi ró og panik tekur yfir í stað yfirvegunar, sem samt er grundvöllur krísustjórnunar. Ég hélt reyndar að kórinn myndi ekki byrja fyrr en við 200 smit en svona er þetta, það er erfitt að spá rétt fram í tímann.

Þórólfur er farinn að tjá sig um "eina leiðin" sem auðvitað eru hertar takmarkanir. Það má alls ekki (alls ekki) ræða aðrar aðferðir eins og snemmmeðferð með lyfjum. Bara alls ekki. Lífið er bara ein leið.

Fjölmiðlar setja eins og venjulega engin spurningamerki við "eina leiðin" sem á mannamáli þýðir að coa með.

Er það virkilega sem þjóðin vill?


mbl.is Hafa þungar áhyggjur af útbreiðslu smita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þjóðin vill auðvitað ekki að það séu takmarkanir en þjóðin fær bara ekkert alltaf það sem hún vill heldur.

Hvað fyrir mína parta þá vil ég frekar fá harðari takmarkanir heldur en að leyfa þessu bara að fljóta yfir alla og enginn veit í raun hvernig fer fyrir þeim ef þau smitast af þessu.

Ég á vini sem hafa smitast af þessu og á meðan aðrir hafa varla fundið fyrir einkennum þá hafa aðrir farið mjög illa og nánast legið á dánarbeði og hafa enn ekki náð sér þrátt fyrir að hafa smitast í upphafi faraldurs.

Ég vil ekki taka áhættuna á í hvorum hópnum ég myndi tilheyra svo ég tek þessum takmörkunum sem og öðru bara eins og mér vera ber.

Arnar (IP-tala skráð) 10.11.2021 kl. 19:55

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Arnar bloggið snýst um að það séu fleiri leiðir en takmarkanir. Enda sýnt sig að takmarkanir eru skammtímalausnir en hvað með langtímalausnir?

Rúnar Már Bragason, 10.11.2021 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband