Óumdeilanlegt að hætta við borgarlínu

Er algerlega ósammála fullyrðingum Alexöndru um að ríkið sé lausnin í almannavögnum. Hún segir ma.: "Það er al­veg ljóst að Betri sam­göng­ur og borg­ar­lína eru eina leiðin til að mæta þörf­um framtíðar­inn­ar í borg­inni þegar fjöld­inn eykst. Líka ljóst að hún er miklu ódýr­ari og áhrifa­rík­ari en nokkr­ar aðrar aðgerðir eins og að breikka vegi, fjölga veg­um eða leggja fleiri mis­læg gatna­mót."

Þarna alhæfir hún um að eina lausnin sé að breikka vegi. Það er í algerri andstöðu sem Betri samgöngur hafa haldið fram enda vilja þau fyrst og fremst mislæg gatnamót og flýtileið fyrir strætó. Það er alls ekki sama og Alexandra fullyrðir.

Hitt málið er að strætókerfið (og hugmyndir um borgarlínu) er svo fjarri því að vera lausn fyrir fólk sem vill fara á milli hverfa. Henta ef farið í 101 en annað er það algerlega galið. Þess vegna kaupa flestir sér bíl til að komast hratt og örugglega á milli hverfa.

Hættum við borgarlínu og gerum þetta á skynsaman hátt.


mbl.is „Óumdeilanlegt“ að ríkið þurfi að koma sterkar inn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fólk sem vill draga úr umferðarteppum og mengun en er á móti mislægum gatnamótum, er í mótsögn við sjálft sig.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.10.2022 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband