Er engu nær um alvarlega hlýnun vegna El Nino

Merkilegt með svona fréttir að það er varað við stórkostlegri hættu án þess að segja í hverju hættan er fólgin. Auðvitað er lætt inn hlýnun af mannavöldum án þess að skýra hvað það eigi sameiginlegt með þessu veðurfyrirbæri.

Það eina sem má lesa úr fréttinni er að líklegra sé að næsta ár verði hlýrra en í ár.

Að drýgja einhvern texta með innihaldsleysi er auðvitað fyrirbæri sem loftlagspredikarar nota. Þeir nota mörg orð með ansi rýru innihaldi sem gefur okkur engar upplýsingar til að vinna úr. Sem sagt við eigum von á hlýrra ári á næsta ári en eigum að skíta í brækurnar út af því.

Það væri gaman að vita hver fær að skrifa síendurtekið svona innihaldslaust efni.


mbl.is Vara við El Niño og alvarlegri hlýnun fram undan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Þau koma svona til skiptis, El Nino hitar en La Nina kælir

Þetta er allt saman ein "hópeflisvitfirring"

Haukur Árnason, 4.5.2023 kl. 00:24

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Líkar þetta orð: hópeflisvitfirring. Lýsir vel hvað er átt við en eins og þú segir annað hitar hitt kælir, ekkert nýtt á ferð.

Rúnar Már Bragason, 4.5.2023 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband