12.1.2022 | 13:01
Dýrasti maður Íslandssögunnar
Þessi fullyrðing er ekki út í bláinn því hann kostar okkur miljónir á hverjum degi, í testum, lokunum, óþarfa bólusetningu og einstrengingslegum aðferðum.
Nú vilja margir fylgja vísindunum en aðgerðir Þórólfs eru ekki vísindalegar:
1. Það er engin rannsókn til sem sýnir að 2 metra fjarlægð dugi gegn smitum.
2. Allar rannsóknir á grímum sýna mesta lagi miðlungs hæfni til að varna smitum við réttar aðstæður.
3. Þríbólusettir eru að smitast í hrönnum, fólk að endursmitast og mesta fjölgun á spítalanum eru bólusettir. Allt í einu eru tölur ekki uppfærðar á covid.is - hvers vegna?
4. Það eru til lyf sem virka en neitar að nota þau, jafnvel þótt rannsóknir sýni fram á annað.
5. Hann er seinn að uppfæra sig með nýjum upplýsingum og fer einstrengingslega leið. Endurtekur sömu leiðina og reynir að rugla fólk með tölfræði.
6. Hann gerir ráð fyrir að allir geti smitast sem er tölfræðilegur ómöguleiki og ekki í samræmi við faraldsfræði.
7. Í faraldsfræðum þá sýnir sig að fjöldi smita fer jafn hratt upp og aftur niður. Út frá því er gengið í fræðunum. Þórólfur fór eftir þessu í fyrstu bylgju en fékk síðann tölfræðing sem gengur ekki út frá því. Mjög óvísindalegt.
8. Eyðir meiri tíma í fjölmiðlum en að afla sér nýrra upplýsinga til að sjá hvort megi breyta um aðferðir.
9. Stöðugt sagðar fréttir sem henta málstað bólusetningar t.d. að ungabarn sé á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Allt til að hræða fólk til hlýðni við bólusetningu.
10. Bólusetning er ekki lækning. Hugmyndin er að búa til fyrirbyggjandi aðstæður til að takast á við sjúkdóm. Því er fáránlegt að sprauta sig þegar smit eru í hæstu hæðum. Það er jafn fáránlegt að nota ekki lyf til að lækna fólk.
Gæti týnt upp fleiri atriði en í grunninn er lítið vísindalegt hjá þessum manni heldur er haldið dauðahaldi í sömu aðferðir sem allir sjá að eru löngu hættar að virka. Af hverju:
1. Fólk breytir hegðun sinni og ef það má ekki hittast á opinberum vettvangi þá eru heimahúsin fyrir valinu. Þetta þýðir jú þú getur sett reglu 1-2x en eftir það fer verulega að draga úr gildi þeirra.
2. Ef regla gildir ekki í fyrra sinn af hverju ætti hún að gera það í næsta. Orðræða Þórólf er að við sjáum þetta eftir viku til 10 daga. Nú hafa sömu aðgerðir verið við gildi í 8 vikur með engum árangri. Af hverju ekki að breyta um kúrs?
3. Aðferðir vísinda snúa að því að efast um hluti og því eru aðgerðir í sífelldri endurstkoðun eigi þær að vera vísindalegar.
Það er alveg ljóst að þessi maður er að kosta þjóðina miljarða og samt halda margir áfram að klappa fyrir honum eins og enginn sé morgundagurinn. Ég veit að ég er í minnihluta en þessi maður er ekki að koma okkur út úr þessu ástandi.
![]() |
Jafnvel von á hertum aðgerðum fyrir helgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2022 | 12:33
Vísvitandi að misskilja
Þegar ég las orð Ragnars Freys þá skyldi ég hann aldrei þannig að hætta skimun heldur að draga úr henni og skima þá sem hafa einkenni. Hann var að vísa til þess að alltof margir einkennalausir eða einkennalitlir væru skimaðir og settir í einangur. Kannski væri nær að einbeita sér að þeim sem eru smitaðir.
Þá segir Þórólfur:
Þungamiðjan hefur verið og er að beita einangrun og sóttkví og það hefur haldið faraldrinum aðeins í skefjum. Annars væri þetta komið í veldisvöxt, það er ég viss um,
Árangur:
Aldrei verið eins mikið af smitum. Er bara hægt að kenna afbrigði um?
Ef horft er til spítalavistar þá er helmingur innlagna síðustu 6 mánuði miðað 15 mánuði þar á undan, þe. næstum þreföldun innlagna. Það sama á við um gjörgæslu.
Herferðin hefur verið um þá óbólusettu (þótt við fáum ekki nákvæma skilgreiningu) en af hverju verður þessi gríðarlega fjölgun eftir bólusetningu? Áttu ekki bólusettir að veikjast minna. Það er ekki einungis hægt að útskýra með óbólusettir haldi uppi þessari fjölgun.
Enn heldur Þórólfur áfram:
Þá myndum við fá fleiri smit og meiri útbreiðslu á stuttum tíma, með meiri pressu og innlögnum á spítalann.
Hvað með snemmmeðferðir? Hvað með að lækna fólk en ekki senda heim án lækningar?
Skipsbrotið á aðferðir Þórólfs er algert og réttara að segja gjaldþrot. Ef miðað er t.d. við Bretland þar sem fólk má enn hittast þá sýnir það sig ekki að smit fari upp úr öllu valdi eins og Þórólfur vill meina. Gleymum því ekki að Bretland er mun þéttbýlara en Ísland.
Helsti veikleiki í aðgerðum Þorólfs er að fólk smitast mest í heimahúsi. Ekki endilega heima hjá sér heldur hittast í heimahúsi (sbr. Víðir sjálfur). Þótt pöbbar séu lokaðir þá hættir fólk ekki að drekka og hitta aðra til að drekka saman. Þennan veikleika hefur Þórólfur aldrei verið beðinn um að útskýra. Ef nýjasta útspilið með þríbólusetta og sóttkví misheppnast mun Þórólfur þá viðurkenna mistök sín?
Freyr kom með gott innlegg um nauðsyn þess að nálgast sóttvarnir á nýjan hátt. Það er löngu kominn tími á það.
![]() |
Þórólfur algjörlega ósammála Ragnari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2022 | 16:30
Gott dæmi um rökleysu hjá Reykjavíkurborg
Mat á þessum gatnamótum hjá Reykjavíkurborg var að gangandi og hjólandi þyrftu að komast þarna yfir. Einnig er sleðabrekka þarna og vildu meina að þrengdi óþarflega að henni.
Bæði þessi rök halda engu vatni því að undirgöng eru báðu megin við þessi fyrirhuguðu gatnamót ca. 200 metra í sitthvora áttina. Hvers vegna hjólandi og gangandi þurfa endilega að fara þessa leið en ekki taka á sig smá krók er óskiljanlegt.
Alveg jafn óskiljanlegt og hjólabrautir sitthvorumegin við Grensásveg þar sem ég hef jafnoft séð hjólandi upp á gangstíg eins og á þessum hjólabrautum. Ætti einnig að nefna göngustíga við Bústaðarveg er lélegri en hjólabrautirnar þótt nánast enginn hjóli Bústaðaveg (allavega ekki allan veginn).
Vonandi taka þeir sig saman í andlitinu í Kópavogi og geri þetta rétt.
![]() |
Lakari lausn með tilliti til umferðaröryggis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2022 | 13:36
Vísindi bara fyrir suma að nota
Vörn Þórólfs heldur engu vatni enda gerir Þorsteinn vel að benda á að með þessari uppsetingu má finna út allt annað en verið er að halda fram, að bólusetning virki svo vel.
Hins vegar veit enginn í raun hvort bólusetning virki svona rosalega vel því engin leið er að gera samanburðarrannsókn á þeim sem eru óbólusettir og bólusettir. Sá möguleiki var eyðilegður með alltof stuttu rannsóknarferli. Fyrir utan það þá myndi enginn vilja smita viljandi fólk til að sjá niðurstöður. Þess vegna er unnið út frá smitum en svo vill til að þetta er bara lítill hluti heildarinnar og því tölur alltaf skekktar.
Ef síðan er teknar inn breytur eins og aldur, heilsufar, matarræði, hreyfanleiki, oft á samkomum, oft í stórum hóp stórfjölskyldunnar o.s.frv. þá er svo erfitt að finna út samanburðarhóp. Samt er það líklegasta leiðin til að segja til um virkni. Samkvæmt bók Robert F. Kennedy - The Real Dr. Fauci þá heimtaði Dr. Fauci samanburðarrannsókn á lyfjum sem virkuðu gegn covid-19. Samkvæmt bókinn var gerð rannsókn en þá var fólkinu gefnir of stórir skammtar svo rannsóknin sýndi ekki sömu niðurstöðu og aðrir höfðu fengið án samanburðarrannsóknar. Út frá þessu fengu lyfin ekki leyfi en samt hafa mörg lönd notað þessi lyf með góðum árangri. Á sama tíma þarf enga samanburðarrannsókn á virkni bóluefnanna, nema í mýflugumynd. Rannsóknir sem lyfjafyrirtækin stóðu fyrir en ekki óháðir aðilar.
Þetta eru öll vísindin sem við eigum að fylgja í blindni og notum síðan tölfræði til að lepja upp blekkinguna. Í raun getum við lítið sagt um hvort veiran hafi veikst eða bóluefnin sjái til þess að fólk veikist minna. Ekki fækkar bóluefnin smitum það er alveg ljóst.
Vísindin sögðu bless fyrir löngu (væri óskandi að tækju sig saman í andlitinu) og þessi blinda trú á að fylgja lyfjafyrirtækjunum er leið til glötunar en ekki frelsis.
![]() |
Vanmat á tölum um nýgengi smita hjá óbólusettum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2022 | 18:14
Að mismuna Íslendingum er hafið
Hvað varð um jafnræðisregluna?
Líklega fauk hún út um gluggan því að rannsóknir (sem við vitum ekki hvaðan koma) sýna fram á eitthvað, minna af smitum eða veikindum. Hins vegar eru þetta ekki samanburðarrannsóknir og því mjög langsótt að segja að bóluefnið sé þess valdandi að minnka smit eða veikindi. Þessi ákveðni hópur sem var rannsakaður sýndi þetta en breyturnar eru svo margar að erfitt er að alhæfa um það, fyrir utan það að þýðin eru misstór. Eru hóparnir samskonar t.d. með tilliti til aldurs? Er fólkið talið svipað hraust fyrir veikindi?
Hvað um það.
Þessi blinda trú á að bóluefnin séu kraftaverk er fáránleg enda áróðurinn látinn dynja í sífellu. Með því að vísa í rannsóknir þá er verið að þaga málið niður og mismuna fólki.
Lélegt leikrit sem vonandi á eftir að draga dilk á eftir sér og einhverjir verði að svara fyrir alla þessa vitleysu að nota ekki lyf sem virka en trúa í blindni á boluefni.
![]() |
Ráðherra breytir reglum um sóttkví |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.1.2022 | 16:20
Meiri áróðurinn
Alveg ótrúlegt hvað áróður um bólusetningu fær mikið pláss í fjölmiðlum en ekkert talað um lyf sem virka gegn veirunni. Undanfarna daga hefur hlutfall smitaðra miðað við próf verið á niðurleið en þar sem það hentar ekki áróðrinum þá þarf allt í einu að uppfæra vefsíðuna.
Öll þessi tölfræði er mjög böguð og erfitt að meta hvað sé nákvæmlega rétt. Þannig fær Þórólfur út að færri verði veikir en er samt með miklu stærra mengi til að vinna úr. Hann getur ekki metið innan þess mengis hvernig fólk hegðar sér, þess vegna er alltaf brenglun í svona uppsetingu og samanburður á gráu svæði.
Þríbólusettir eiga að veikjast minna en hver segir að þetta sama fólk hefði nokkuð veikst meira ef ekki verið bólusett. Það er ekki til nein samanburðarrannsókn á því. Þannig fæ ég niðurstöðu um að þetta sé ekki annað en áróður.
![]() |
Staðan væri margfalt verri án örvunarskammts |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2022 | 22:26
Dæmi um misnotkun á tölfræði vegna Covid
Eftirfarandi texti er tekinn af visi.is
Þá eru þetta 5.300 sem eru bólusettir og hafa sýkst en af þeim eru bara ellefu sem hafa lagst inn. Fyrir óbólusetta þá eru þetta 2.200 tæplega sem hafa sýkst. Þið sjáið það að miðað við hlutfallið, bólusettir eru 280 þúsund og þar hafa 5.300 smitast en óbólusettir eru 24 þúsund um það bil og af þeim eru 2.200 sýktir."
Þessar tölur eiga að vera frá 29 desember 2021 til 5. janúar 2022.
1. villan er hvaða aldursbil ertu að tala um? Eru þetta 18 og eldri eða allir?
2. villan er að setja þýðið sé lokað mengi þar sem allir sitja við sama borð. Það gerist ekki nema í afmörkuðu rými þar sem enginn fer inn eða út.
3. villan er að taka heildarfjölda bólusettra og óbólusettra og tengja við fjölda smita. Það sam á við um villu 2 að til þess þarftu að vera í afmörkuðu rými.
Ísland er ekki afmarkað rými meðan flugferðir eru til og frá landinu. Auk þess ferðast fólk á milli landshluta og sveitarfélaga þannig að svona uppsetning er kjánaleg. Líklega hefur maðurinn sett þetta fram eftir bestu vitund en að sama skapi þá má alveg benda honum á villuna í málfluttningi.
Covid-19 mun ekki læknast eða hverfa með tölfræði. Til þess eru lyfin sem virka en ekki blind trú á bóluefni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2022 | 12:28
Fordómafullur smitsjúkdómalæknir
Eftir áratug þar sem varla mátti anda á aðra nema það væru fordómar þá fær smitsjúkdómalæknir að halda úti fordómum gagnvart óbólusettum. Þetta er ekki forsvaranlegt lengur og maðurinn ætti að sjá sóma sinn og fara.
Í hans eigin orðum sagði að markmiðið væri að ná 70% fullorðinna. Nú er komið 90% og það er ekki nóg. Hann sagði einnig vona að örvunarsprautan myndi koma á ónæmi en ekkert er fjarri sanni enda bóluefni forvörn en ekki lækning.
Þessi þráhyggja hans að bóluefni leysi einhvern vanda núna er algerlega úti hött. Það eina sem skilur eftir hann um þessi áramót eru fordómar gagnvart óbólusettum en samt mátti það vera í lagi við upphaf sprautuherferðarinnar.
Það er kominn tími á að þessir fordómar gagnvart óbólusettum linni og þetta fólk fari að vinna vinnuna sína - að lækna þá sem þurfa með lyfjum sem vitað er að virki.
E.S. það er ekki eins aukning smita þríbólusettra sé eitthvað mikið minni en hinna sem eru minna bólusettir eða óbólusettir. Forsendur að þríbólusettra að sleppa við sóttkví eru því engar. Betra að láta sama ganga yfir alla enda á jafnræðisreglan að gilda.
![]() |
Til skoðunar að létta sóttkví hjá þríbólusettum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.1.2022 | 15:00
Allskonar hugmyndir eru ógnvekjandi orð
Nokkuð gott hjá fréttamanni að setja þessi orð Þórólfs innan gæsalappa "allskonar hugmyndir". Mjög óljóst orðalag og hvað það feli í sér. Geir Ágústsson bloggari var búinn að vara við þessu að sóttvarnaryfirvöld myndu halda áfram að finna upp hjólið þegar kemur að sóttvörnum þrátt fyrir slakan árangur hingað til að allskonar takmörkunum.
Grímur - smit aldrei verið fleiri. Nota grímur í verslunum og þar sem ekki er hægt að halda 2metra fjarlægð. Sem sagt alls ekki nota þær þar sem flestir smitast, í heimahúsi. Kannski núna verður lagt til að nota 2 grímur eða skikka að nota á almannafæri.
Fjarlægðarmörk - eiga að vera 2 metrar nema 1 metri á veitingastöðum. Sé nánast engan fylgja þessu nema með texta um að eigi að gerast. Enda ekki vísindalega sannað að gera eitt eða neitt.
Takmarkaður opnunartími og hlutfall af fjölda sem kemst inn - Sama og um fjarlægðarmörk engin vísindi sanna þetta eða hefur verið reynt að sannreyna að geri eitthvað.
Auðvitað vonast hann að allir leggist í hýði og hlýði en leiðin út er einmitt að flestir smitist. Alveg sama hvað hann velur þá er best að opna en ekki loka.
![]() |
Útilokar ekki að Delta verði áfram næstu mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2022 | 14:47
Ráðríki með takmörkuðum upplýsingum
Smitfjöldi er í einhverjum voða hæðum sem þekkist ekki frá upphafi Covid-19. Svo merkilega vill til að þrátt fyrir yfir 2000 smit frá því um jól þá hefur ekki fjölgað nema um 5 á spítalanum. Ekki 7 á dag eins og Þórólfur talar um.
Í öðrum fréttum er talað um 7 af 8 á gjörgæslu séu óbólusettir og 2 börn séu inni á spítalanum. Fordómarnir gagnvart óbólusettum eru ótrúlegir og það geta legið ýmsar ástæður að baki að sprautunni sé hafnað. Hins vegar var lagt út í bólusetningaherferðina með það að markmiði að ná til 70% þjóðarinnar. Nú eru 90% búin að sprauta sig svo af hverju þessir fordómar?
Víkjum aðeins og þessu 2 börnum sem liggja inni. Fyrir jól þá kom frétt um að fjöldi smita við Klettaskóla þar sem fötluð börn sitja í skóla. Mörg þessara barna eru með veikt ónæmiskerfi og möguleiki að hafi ekki verið sprautuð. Annar möguleiki er að einhver af þeim hafi lent á spítala. Þar sem við fáum bara takmarkaðar upplýsingar þá veit þjóðin ekki neitt en fordæmir og hræðist út frá þeim upplýsingum sem hún hefur.
Þetta er ljótur leikur af spítalanum og í raun í anda áróðurs. Hvers vegna svona mikilvægt að vita að 2 börn liggja inni þegar líklega er hægt að telja þau á fingrum annarrar handar frá upphafi faraldursins. Er það vegna bólusetninga barna 5-12 ára?
Annað áróðursbragð er að birta fjölda smita en gefa mjög takmarkaðar upplýsingar (fyrr en seint og síðar meir) um hversu margir eru í raun veikir að ráði. Ef flestir, segjum 80%, finna mjög væg einkenni þá eru allar takmarkanir sem eru í gangi gagnslausar. Sem eru hvort eð er algerlega gagnslausar því fólk fer mjög takmarkað eftir þessu. Eftir því sem oftar er notuð sama aðferð þá lærir fólka að fara framhjá henni.
Allar upplýsingar hafa takmarkað gildi nema í samhengi við eitthvað og þessu ráðríki verður að ljúka. Hætta við að sprauta börnin er algert forgangsatriði. Hitt forgangsatriðið er af hverju má ekki nota snemmmeðferð fyrir fólk í áhættuhóp?
Allur þessi málatilbúningur með ráðríki og takmörkuðum upplýsingum er kominn á endastöð og þess vegna lýkur Covid-19. Ekki vegna bóluefna heldur vegna þróun veirunnar og aðgerðum sem ekki er hægt að selja lengur. Þeim fjölgar sífellt sem einfaldlega hætta að trúa á þetta.
![]() |
Um 25% Covid-sjúklinga á spítala með Ómíkron |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)