Hvernig getur líkan verið gervigreind

Þetta er gott framtak hjá þeim en þetta er ekki gervigreind. Þetta er bara líkan sem sækir upplýsingar á marga staði.

Umræðan um gervigreind er svo á villigötum að það virðist engin leið að átta sig á hvað er átt við með gervigreind. Greind verður ekki til nema hún læri og þó þú lesir upplýsingar frá mörgum stöðum þá er ekki sagt að hér sé verið að læra. Hins vegar er forsendum sífellt breytt til að reyna fá betri mynd af þeim gögnum sem eru notuð.

Margir hafa farið mikinn um gervigreind en æði oft eru þetta líkön sem ná í upplýsingar á mörgum stöðum og raða saman. Hér er enginn nýr lærdómur heldur einungis verið að nýta upplýsingar á nýjan hátt og vonandi betri. Eins og Gunnar Rögnvaldsson sagði að hér er verið að betrumbæta forritun sem er hið besta mál.

Væri óskandi að fréttamenn köfuðu aðeins í það sem þeir skrifa um.


mbl.is Gervigreindin umbyltir íslenskum veðurspám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ef þeir eru að nota líkan sem lærir og þróast þannig, þá er það gervigreindarlíkan. Af fréttinni má ráða að svo sé.

Þorsteinn Siglaugsson, 27.3.2024 kl. 22:42

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Enda er ég ósammála fréttinni. Meiri upplýsingar til að vinna úr er ekki að læra heldur ná betri niðurstöðu.

Rúnar Már Bragason, 28.3.2024 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband