17.3.2022 | 14:22
Að vita hvenær gera skal rétt
Aðalsteinn segir ekkert að óttast en vill samt ekki mæta í yfirheyrslu, sem vissulega er skrýtin þversögn. Síðan snýr hann málinu upp í að snúist um heimildarmann en það mátti skilja við málið í héraðsdómi að snertist um myndefni í símanum.
Blaðamenn eru svo sem þekktir fyrir að snúa málunum á haus en er þetta ekki einum of augljóst. Saklaus uns sekt er sönnuð svo hvað er til fyrirstöðu að mæta í yfirheyrslu?
Óttast ekki yfirheyrsluna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2022 | 14:44
Þversögnin um bóluefnin
Endurspeglast vel í þessari frétt. Þar segir:
Jafnvel þótt alvarleg veikindi komi fram hjá lægra hlutfalli en áður, m.a. vegna útbreiddra bólusetninga, þá geta alvarleg veikindi komið fram á öllum aldri og jafnvel hjá hraustum, bólusettum einstaklingum,
Hvernig gengur það upp að bóluefni sem átti að koma í veg fyrir smit minnki veikindi en á sama tíma þá geta hraustir bólusettir einstaklingar veikst alvarlega. Las Þórólfur yfir þetta áður en hann skrifaði? Það stendur ekki steinn yfir steini í þessari setningu.
Bóluefni eru ekki til að minnka veikindi og hafa aldrei verið framleitt þannig. Hvers vegna ætti þá allt í einu núna slíkt að gerast? Þetta er bara alger þvæla
Spítalinn vælir og vælir eins og stunginn grís en leggur ekkert til málana hvað þeir vilji að sé gert. Viðurkenna réttilega að lokanir eru ekki svarið. Það lenda öll fyrirtæki og stofnanir í þessu sama en af hverju að væla í fjölmiðlum? Af hverju ekki að fara sömu leið og Florida fylki í Bandaríkjunum er að fara með því að leyfa lyfjameðferð snemma í veikindum?
Þversögnin um bóluefnin endurspeglast ekki síst í að hætt er að birta tölfræði yfir nýgengni eftir bólusetningu. Jú af því að flestir þrísprautaðir eru að smitast. Hvað hafa þá bóluefnin gert í raun?
Það sem Great Barrington yfirlýsingin gaf út að leyfa smitunum að dreifast og taka þetta út.
Mikið álag og innlögnum á sjúkrahús fjölgað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.3.2022 | 09:14
Innihaldsleysi í vestrænni pólitík
Það að banna gosdrykki hefur afskaplega lítinn tilgang nema til að auka hreysti Rússa. Hins vegar endurspeglar það vel innihaldsleysi globalista og vestrænnar pólitíkar. Eitthvað sem skiptir engu máli er tekið eins og það skipti öllu máli í samhenginu.
Það að USA hætti að kaupa olíu án þess að auka sína eigin framleiðslu endurspeglar þetta einnig. Að hætta án þess að koma með neitt í staðinn er aðgerð sem hittir þig sjálfan verst. Endurspeglar best hversu galin pólitík er rekin í USA þessa dagana.
Upplýsingaóreiðan er einnig afgerandi í kringum þetta stríð þar sem engu er hægt að trúa að einhverju viti. Gerspillt stjórnvöld eru látin gráta krókudílatárum og vesturlönd eiga að spila með en hver ber ábyrgð á að auka spennuna á svæðinu? Það er ekki endalaust hægt að taka án afleiðinga.
Eina sem hægt er að vona að þetta verði stutt stríð en nokkuð ljóst er að Úkraína er í vonlausri stöðu. Vesturlönd munu ekki koma til hjálpar nema að orðinu til en einungis spurning hvernig og hvenær uppgjörið verður.
Rússar sviptir kóki og pepsí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2022 | 08:59
Selenskí og Pútín eru báðir jafn slæmir
Það er erfitt að treysta á Selenskí sem nýtir sér tilfinningarússibanann alveg út í ystu æsar. Nú ákallar hann gyðinga sér til hjálpar en er ekki ein ástæðan sem Pútín gaf upp að nasisminn væri ráðandi í Úkraínu.
Selenskí hefur einnig ákallað flýtimeðferð í ESB sem á að skila hverju veit ég ekki. Það er alveg ljóst að ESB getur ekki farið í stríð við Rússa því þá skrúfa Rússar fyrir gasið til ESB og hvað gerir ESB þá?
Pútín er slæmur, Selenskí er slæmur, ESB er ekki neitt og USA sofandi.
Lítur ekki vel út.
Nasismi fæðist í þögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2022 | 23:45
Albert Jónsson með hlutlausa sýn á stríðið
Það er alltaf vert að lesa það sem Albert Jónsson setur frá sér því fáir eru fróðari um alþjóða stjórnmál en hann. Í viðtalinu lýsir hann þessu fumlaust og laus við alla hlutdrægni sem er svo áberandi hjá fjölmiðlum.
Stríð eru ljót og ég styð þau ekki. Get samt ekki sagt að ég styðji stjórnvöld Úkraínu heldur, þau eru gerspillt og það af vesturlöndum.
Viðbrögð vesturlanda hefur verið að reisa vegg með efnahagsaðgerðum og fleiru. Hafa meira segja fengið Tyrki með sér og Kína þegir þunnu hljóði. Eru þetta meiri viðbrögð en Pútín bjóst við? Held ekki og geri frekar ráð fyrir að hann hafi sett upp sviðmyndir.
Ég vorkenni almenningi í Úkraínu en ekki stjórnvöldum svo vonum að þetta verði stutt.
Þetta er bara að byrja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2022 | 13:09
Loksins loksins afnumdar vitleysu aðgerðir vegna covid
Eftir um 2 ár frá fyrsta greinda smitinu þá loksins er öllum aðgerðum hætt á Íslandi sem hefði vel verið hægt fyrir 18 mánuðum.
Þessar aðgerðir skiluðu litlu öðru en að fresta hinu ómögulega og bóluefnin gerðu minna en ekkert nema að gera það sem alltaf átti að gera að leyfa smitunum að dreifast.
Von mín, þótt hafi litla trú á því, er að farið verður almennilega í saumana á þessum aðgerðum og reynt að læra af þeim. Þegar næsti faraldur kemur, vonandi seinna en fyrr, þá verði brugðist öðruvísi við.
1. Lærdómur - bóluefni er ekki lausn heldur á að leita leiða til lækninga.
2. Lærdómur - lokanir skila ekki árangri. Mögulega hægt að nota í upphafi til að fá betri skilning en eftir það verða aðrar aðferðir að vera notaðar. Ef dregst á langinn þá á sífellt að breyta um aðgerðir.
3. Lærdómur - grímur er gagnslausar.
4. Lærdómur - treysta fólki og halda upplýstu en ekki halda upplýsingum til haga ef þær passa ekki við það sem stjórnvöld segja.
5. Lærdómur - það virkar illa að hafa einn ríkisspítala og því betra að fleiri aðilar séu til taks til að takast á við ófyrirséða aukningu eins og í faraldri.
6. Lærdómur - enginn einn aðili eigi að koma fram og gefa út sóttvarnarreglur. Það á að skipta um fólk eftir stuttan tíma.
7. Lærdómur - það vantar algerlega andstæð sjónarhorn fái að heyrast. Að þagga niður umræðu er fasískur háttur og með því fjarlægjumst við lausnina.
Lifinu lífinu lifandi!
Öllu aflétt á föstudag eða fyrr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2022 | 14:10
Ekkert endist lengur en tímabundnar aðgerðir stjórnvalda
Ronald Regan sagði þessi orð á sínum tíma og þau eiga ótrúlega vel við í dag. Fyrstu aðgerðir í covid voru að fletja út kúrfuna en ...
Önnur aðgerð var að yfirfylla ekki spítalann en ...
Þriðja aðgerð var vandinn við að manna spítalann en ...
Enn eru aðgerðir og ójóst hvort þeim verði hætt í lok vikunnar.
Bifreiðaskattur er annað gott dæmi um tímabundna aðgerð stjórnvalda en ...
Í dag eru þyngri fólksbílar þe. rafmagnsbílar undnanþegnir tímabundið en sjáum til.
Í Kanada voru sett neyðarlög og leyft að frysta reikninga sem studdu Freedom Convey en ...
Í dag má gera það til lengri tíma og taka peninginn því það kostaði svo mikið að koma mótmælendum í burtu.
Lygi stjórnvalda felst í orðinu tímabundið.
Tæki til að greina Covid-sýni bilaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.2.2022 | 18:24
Þessu er hægt að mótmæla en ekki því sem gerist í Kanada
Það að blaðamenn séu kallaðar inn til yfirheyrslu þykir eitthvað stórmál en er í raun bara rannsókn á máli. Hvers vegna þessir mótmælendur halda að ekki megi kalla inn blaðamenn vegna þjófnaðar er stórskrýtið, sér í lagi þar sem gögn úr stolnum síma voru notaðar í fréttirnar.
Þetta sama fólk vekur enga athygli á því sem er að gerast í Kanada þar sem verið er að traðka á lýðræðinu. Sett hafa verið neyðarlög gagnvart mótmælendur í Freedom Convoy sem þýðir að það má taka fólk til fanga, frysta bankareikninga og gera hluti upptæka.
Mótmælin hafa verið friðsæl, andstætt búáhalda mótmælunum hér á landi. Mótmælendur fara ekki fram á annað en að fólk fái val um bólusetningu og afnemi bólusetningapassa. Trudeu sem hefur stutt hryðjuverkasamtökin Hamas og BLM kallar mótmælendur hryðjuverkamenn. Í neyðarlögum hans þá eru hvítir settir neðar en innflytjendur. Ekki nóg með það þá hótar lögreglan að handtaka blaðamenn fyrir að vera á mótmælendasvæði. Þögn íslendskra fjölmiðla er til háborinnar skammar.
Þessum hópi finnst merkilegra að fjórir blaðamenn geti sett sig í fórnalambsgírinn yfir því að vera kallaðir í yfirheyrslu hjá lögreglu.
Þið ættuð að skammast ykkar!
Fjölmennt var á friðsælum mótmælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.2.2022 | 16:05
Hafa fjölmiðlar sinnt mikilvægu lýðræðishlutverki í covid faraldrinum?
Einfalt og stutt svar er: NEI
Bara alls ekki og Rúv hefur verið það allra versta. Ýtt undir hræðslu og látið vera að fræða fólk um möguleika að fást við ástandið. Nei það skulu allir fjölmiðlar segja sömu fréttirnar án þess að milli megi sjá hver er að flytja fréttirnar.
Fjölmiðlar í dag eru löngu hættir að veita lýðræðislegt hlutverk þótt alþingismenn hristist ef eitthvað birtist um þá. Þeir flytja allir sömu fréttirnar og þegja á sama hátt um aðrar fréttir.
Það hefur varla heyrst múkk í fjölmiðlum á Íslandi, fyrir utan frett.is, um Freedom Convoy í Kanada og hvernig þeir friðelskandi mótmælendur eru kúgaðir af stjórnvöldum. Með því að frysta söfnunarfé þeirra, kalla þá hryðjuverkjamenn og setja neyðarlög til að þurfa ekki að fara til dómsstóla. Þessi svakalega hættulegu friðsömu mótmæli sem snúast um að afnema bóluefnaskyldu og bóluefnapassa.
Lilja Dögg er svo á rangri leið með fjölmiðlafrumvörp sín og hugmyndir um fjölmiðla almennt.
Ef lýðræðis umræða á að ná aftur á strik í gegnum fjölmiðla þá er Rúv lagt niður í núverandi mynd og lögð áhersla á leikna þætti, viðtöl og fréttaskýringar. Allt án auglýsinga og það er nóg að reka eina útvarpsstöð og eina sjónvarpsstöð. Best væri að leggja Rúv alfarið niður.
Fjölmiðlar geti sinnt mikilvægu lýðræðishlutverki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2022 | 13:04
Nýaldarspeki
Lítið annað hægt en að kalla speki Þórólfs nýaldarspeki. Allt í einu í sögu mannkyns þá fer faraldur hægar niður en upp. Þó samkvæmt öllum gröfum þá síðustu 2 ár í heiminum er ekki svo að sjá. Fyrir utan áreiðanleika prófanna þá eru dauðsföll mun betri mælikvarði en sá mælikvarði í þessum faraldri er mjög bagaður. Vafamálin tölfræðilega eru alltof mörg til að slá upp svona fullyrðingu hjá Þórólfi. Tölfræði vefst eitthvað fyrir kallinum en það er svo sem ekkert nýtt.
Þessi nýaldarspeki sem flest lönd fóru eftir fær auðvitað falleinkunn. Lokanir, grímur, fjarlægð og ekki treysta fólki er algerlega vonlaus leið til að fást við faraldur. Hvað þá að halda að getir notað sömu aðferðina aftur og aftur. Tölum nú ekki um bóluefnapassa og að bóluefni reddi öllu.
Athyglisvert sem ég las í gær að læknar eru bundnir sínum eyð en einnig bundnir því sem ríkið setur út sem leið til lækninga. Þessi þversögn er algerlega út í hróa en skýrir samt margt af hverju svona margir læknar hafa þagað síðustu 2 ár. Hinir sem tala niður lyf verða að eiga það við sig, enda alveg skýrt að þeir þurfa þess ekkert.
Á nýrri öld halda menn að þeir séu að finna upp hjólið en líkt og Great Barrington yfirlýsingin lagði til þá er það leiðin, láta smitin dreifast og lækna fólk með þeim ráðum sem til eru. Sóttvarnarráðstafanir hér hafa haft 1 ár af fólki (og lífsviðurværi margra) og reyna svo að hanga lengur á þessari vitleysu.
Það verður forvitnilegt hvort ég fái að sjá söguskoðanir um þetta í framtíðinni.
Faraldurinn fljótari upp en niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)